Njóttu aðventunnar með Omnom!
Hið vinsæla Aðventudagatal er komið í sölu, dagatal sem kemur í takmörkuðu upplagi og færri fá en vilja – við mælum mikið með!
Hið vinsæla Aðventudagatal er komið í sölu, dagatal sem kemur í takmörkuðu upplagi og færri fá en vilja – við mælum mikið með!
Í ár kemur dagatalið í fjórum veglegum öskjum, ein fyrir hvern sunnudag í aðventunni.
Omnom býður upp á fjórar ólíkar bragðupplifanir, handgert gæðasúkkulaði og mikið góðgæti. Gjafaaskjan er svört með fallegri gyllingu og er fullkomin viðbót við Vetrarlínuna, sem söfnunargripur.
Hver og ein bragðupplifun kemur í glæsilegri og vandaðri tindós sem nýtur sín vel sem skraut á jólatrénu eða á fallegri aðventugrein. Advent Sundays er munaður fyrir bragðlaukana.
Í Advent Sundays gjafaöskjunni má finna:
- Ristaðar möndlur hjúpaðar með dökku súkkulaði og þurrkuðum hindberjum
- Mokkasúkkulaðirúsínur sem legið hafa í rommi í fjóra mánuði
- Saltaðar möndlur hjúpaðar með karamellusúkkulaði
- Mjólkusúkkulaðihúðaðar heslihnetur
Dagatalið fæst í verslun Omnom á Hólmaslóð og vefverslun, HÉR
Einnig fáanleg í EPAL og Vínberinu og í verslun Lyst á Akureyri.
Nú mega jólin koma … eða er þetta fullsnemmt? Við hlökkum allavega til að telja niður til jóla með íslenska Omnom.
//TRENDNET
Skrifa Innlegg