Sjóklæðagerðin fagnar opnun sundlauga með nýjum vöruflokki sem eflaust margir munu taka vel á móti – sundfötum!
“Að fara í sund er órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu. Hvort sem það eru sundlaugar, náttúrulaugar eða sjórinn, þá finnum við alltaf stað og stund til að skella okkur til sunds á ferðalagi okkar um landið. Í fyrsta skipti eru sundföt nú hluti af fatalínu 66°Norður.
Við erum sammála!
Straumur sundbolurinn er úr hágæða ítölsku sundfataefni sem þolir vel klór, sólarvörn og olíur og er með UV- vörn. Straumur sundbuxurnar eru þægilegar og klæðilegar sundbuxur í klassísku sniði úr efni sem þornar fljótt. Sundfatnaðurinn okkar fæst í verslunum okkar og vefverslun.”
Þið finnið opnunartíma sundlauganna í Reykjavík hér en við mælum með íslenskum náttúrulaugum um allt land.
Allir í sund!
//TRENDNET
Skrifa Innlegg