Þá er komið að skemmtilegasta tíma ársins. Reykjavik Fashion Festival er að bresta á og við erum komin í gírinn! RFF er einn stærsti viðburður okkar Íslendinga þegar kemur að tísku og því við hæfi að Trendnet standi í fremstu víglínu.
Við munum fara vel yfir alla þætti hátíðarinnar meðan á henni stendur og halda úti sérstöku RFF pop-up bloggi í samstarfi við Egils Kristal.
Við munum fylgjast með og segja ykkur frá undirbúningi hátíðarinnar og hönnuða, fjallað verður um allar sýningar í beinni, kíkt baksviðs og skoðað hár og förðun ásamt því að fylgjast með götutískunni hjá gestum hátíðarinnar.
Þær sem koma til með að halda utan um RFF bloggið í ár eru þær Rósa María Árnadóttir, góðvinkona Trendnet fjölskyldunnar. Hún hefur undanfarin ár slegist í lið með okkur á RFF og ásamt henni verða Trendnet bloggararnir Hrefna Dan, Melkorka Ýrr og Sigríður Margrét á vaktinni og munu þær ekki láta neitt framhjá sér fara næstu daga.
Rósa María Árnadóttir
Hrefna Dan
Melkorka Ýrr
Sigríðurr
Trendnet bloggarar gegna einnig öðrum hlutverkum á hátíðinni og munum við sjá Andreu Röfn ganga vel valda tískupalla og Steinunn Edda mun láta til sín taka á makeup sviðinu.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á RFF bloggið og hlökkum til sýna ykkur frá hátíðinni. Leyfið okkur að fylgjast með ykkar trend mómentum um helgina með því að merkja #TRENDNET á ykkar Instagram myndir.
Trendkveðjur!
Skrifa Innlegg