fbpx

RFF 2017

RFF – gestaspjall

RFF2014

Það var margt um manninn á RFF í Hörpunni á laugardaginn þegar íslenskir hönnuðir frumsýndu fatalínur sínar fyrir næsta haust. Trendnet tók púlsinn á gestum hátíðarinnar milli sýninga og spurði þá álits.

IMG_9056

Agla Friðjónsdóttir og Vala Valþórsdóttir um Farmers market: Gullfalleg sýning, gaman hvað bakgrunnur, tónlist og fötin spiluðu vel saman. Módelin voru eins og leikarar. Í heildina mjög falleg lína og margt sem við gætum hugsað okkur að klæðast.

IMG_9071

Þórunn Ívarsdóttir um Ziska: Ég hafði ekki fylgst áður með merkinu Ziska og það kom mér skemmtilega á óvart. Flott opnunarvideo og innblásturinn sást greinilega. Mjög flott sýning og föt sem hægt væri að klæðast beint af sýningapallinum og ég væri til í að eignast.

IMG_9070

Ása Ninna um magneu:  Finnst sýning magneu hafa staðið upp úr af þeim sem hafa verið sýndar hingað til. Heildarlúkkið mjög flott, bæði föt og sýning glæsileg. Augljóst að hérna eru mikir hæfileikar á ferðinni.

IMG_9067

Andrea Magnúsdóttir um magneu: Ótrúlega flott visual uppsetning og fallegt knitwear. Hönnun Magneu er ferskur andblær í íslensku tískufóruna.

IMG_9062

Gunnþórunn Jónsdóttir um magneu: Flottasta sýningin hingað til og kom mjög vel út. Hefði þó viljað fá að sjá fleiri show-pieces en í heildina mjög flott sýning

IMG_9082

Þórunn Káradóttir um E L L U: Mjög flott sýning og opnunarvideoið ótrúlega flott. Ákveðið girl power þema, var mjög ánægð Indipendent Women í lokin með Queen B.

IMG_9079

Margrét Björnsdóttir um REY: Öll sýningin stórglæsileg, svarti samfestingurinn stóð upp úr. Væri til í að klæðast öllu, glæsilegt – rauða matching dressið líka sjúkt.

IMG_9084

Sigríður Jódís Gunnarsdóttir um REY: Sú sýning sem kom mér mest á óvart hingað til. Hvíta kápan geggjuð og flottur rauði liturinn. Silfur outfittin og höfuðskrautin líka ótrúlega flott.

IMG_9087

Sigrún Aðalheiður Eiríksdóttir um Sigga Maija: Flott lína, en hefði viljað fá að sjá meira show og tónlist sem passaði betur við. Fötin mjög flott, fyrsta bláa settið og rauði toppurinn sem var opinn í bakið voru uppáhalds pieces frá sýningunni.

IMG_9090

Stefanía Rós Thorlacius um Cintamani: Rosalega flott og fannst þetta ein af bestu sýningunum hingð til, löng og flott lína. Appelsínuguli liturinn var alveg truflaður. Líka flott heildarlúkkið með bláu síðu úlpunni og Tolla úlpan stóð upp úr.

IMG_9058

Hófí Sigurðardóttir um JÖR: Sýningin var vægast sagt tryllt. Ég horfði nú reyndar mest á dömu fatnaðinn og ég varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Flottar og klæðilegar flíkar. Ég læt mig ekki vanta þegar haust lína JÖR mætir í búðirnar.

Þökkum álitsgjöfum okkar kærlega fyrir spjallið -sjáumst á RFF 2015.

Margrét Þóroddsdóttir

Baksviðs á RFF 2014

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Helga

    1. April 2014

    Flottir álitsgjafar, væri gaman að sjá meira svona á blogginu ykkar, myndir af random fólki :)