Góðan og blessaðan föstudag, ég er mætt aftur á Íslandið góða meðal annars vegna skemmtilegra verkefna sem ég er að fara í á morgun, segi ykkur betur frá því við tækifæri. En það vildi líka svo skemmtilega til að Airwaves helgin er akkúrat á sama tíma og ég er því lukkuleg að ná að fara á þessa skemmtilegu hátíð eftir 7 ára fjarveru. Lenti í gær og fór beint í stuðið, læt myndirnar tala..
Fyndin móment af instagramminu mínu
LA PRIEST flottur á því í satin náttgalla..
Gott að enda kvöldið hér, og aldeileis ekki í fyrsta né síðasta sinn hjá mér
Uppgötvaði svo í lok kvöldsins skítaapparat á stígvélunum mínum, frábært!
Hápunktur kvöldsins að mínu mati voru Low Roar og Aurora.. Kvöld tvö að ganga í garð hjá undirrituðu, áhugasamir geta fylgst með mér á Instagramminu mínu @TRENDPATTRA
-sjáumst fallega fólk!
..
Back in beautiful Reykjavík and you can find me @ Iceland Airwaves glad to be back at this awesome festival after 7 aiwavesless years!
PATTRA
Skrifa Innlegg