Núna hef ég komið með uppskrift af spænskum þorskrétti og spænsku lambalæri og núna er komið af spænskum ofnbökuðum kjúklingi. Þið getið smellt á nöfnin til þess að fara beint í uppskriftina. Það er ekki mikið af hráefnum í þessum rétti en þau passa öll ótrúlega vel saman. Chorizo pulsan er stútfull af brögðum og krafti sem springa út þegar hún er elduð og mikið notuð við spænska matargerð.
Hráefni:
1.5 kg kartöflur, skrældar og skornar niður í 2.5 cm sneiðar
4 sítrónur
1 lúka af steinselju
2 kg heill kjúklingur
300 g Chorizo pulsa
2 hvítlauksgeirar
Olía
Salt & pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 220°. Sjóðið vatn í potti, setjið kartöflurnar og 2 af sítrónunum í og sjóðið saman í 5 mínútur. Sigtið vatnið frá og búið til fullt af litlum götum í sítrónurnar. Ástæðan fyrir því er að þið setjið þær inní kjúklinginn og þá lekur safinn úr sítrónunum sem gefur bragð og sítrónurnar hitna og kjúklingurinn eldast hraðar. Saman bragðast þetta og lyktar betur.
Skerið stönglana af steinseljunni og setjið inní kjúklinginn með sítrónunum. Saltið og piprið kjúklinginn ásamt kartöflunum. Skerið Chorizo pulsurnar í ½ cm sneiðar. Finnið til eldfast mót og setjið bökunarpappír yfir og ýtið í formið þangað til að það liggur niðri og stendur aðeins uppúr. Setjið kartöflurnar og ¾ af Chorizo sneiðunum í botninn ásamt smá af smátt saxaðri steinselju og olíu. Setjið kjúklinginn ofan á kartöflurnar og inn í ofn í 1 klukkutíma og 20 mínútur.
Á meðan kjúklingurinn eldast gerið þá smá dressingu til að hafa með, rífið sítrónubörkinn niður af hinum tveimur sítrónunum, ásamt smátt saxaðri steinselju, pressuðum hvítlauksgeirum, salti, pipar og olíu.
Síðustu 15 mínúturnar af kjúklingum raðið þá restinni af chorizo pulsunni ofan á kjúklinginn.
Þegar kjúklingurinn er eldaður takið hann út, úr mótinu og leggjið til hliðar. Setjið kartöflurnar aftur inní ofninn í nokkrar mínútur til að gera þær stökkar.
Kartöflurnar verða hrikalega bragðgóðar eftir að paprikubragðið, og olíurnar frá Chorizo pulsunni. Chorizo pulsurnar verða á sama tíma stökkar og bragðgóðar.
Ef það er einhver olía og kraftur eftir í mótinu hellið þá annað hvort yfir kjúklinginn þegar þið eruð búin að skera hann niður eða yfir kartöflurnar.
Skerið í kjúklinginn niður í bita og berðu fram með kartöflunum og dressingunni yfir.
Gott er að bera fram með klettasalati eða ferskum tómötum og rauðlauk.
Marta Rún
Skrifa Innlegg