Something Fishy er með fallegri og sniðugri íslenskri hönnun sem ég hef séð. Ég er svo rosalega hrifin af þessum hvítu furðuverum sem hægt er að skapa með fiskbeinum einum saman. Róshildur Jónsdóttir er snillingur á bakvið þessa hugmynd en hún er útskrifaður vöruhönnuður frá LHÍ.
Something Fishy kemur í kassa sem inniheldur hreinsuð bein úr fiskhausum ásamt málningu og lími. Svo er bara að sleppa ímyndunaraflinu lausu og skapa sitt eigið dýr eða furðuveru og að lokum finna nafn á veruna sem hefur verið sköpuð. Ég gæti trúað að gaman væri að dunda sér við þetta á jóladagsmorgun með börnunum og því tilvalið að lauma þessu í einn jólapakkann í ár – og finna svo góðan stað í stofunni fyrir listaverkið.
Something Fishy fæst í Spark, Aurum, Eymundsson, Mýrinni og Þjóðminjasafninu og kostar 8900 kr.
Skrifa Innlegg