fbpx

JAFNVÆGISHJÓL FYRIR BÖRN

BörnHreyfingInstagramVerona

Í morgun póstaði ég þessari mynd af Emanuel (2ja ára ) á Instagram þar sem hann brunar áfram á hjólinu sínu, einbeittur á svip.

unnamed-24

 

Hér sjáið þið semsagt bæði hjálmlaust barn ( því var kippt strax í lag ) og jafnvægishjól. Í mínu uppeldi reyni ég að velja þau leikföng vel sem barnið mitt fær en ég vil síður hafa herbergið hans fullt af dóti (drasli) sem hann leikur sér aldrei með. Ég horfi að sjálfsögðu á hans áhugasvið og vel dótið í samræmi við það en boltar, bækur, hljóðfæri og hjól er það sem hann velur sér oftast og því fékk hann sitt fyrsta tvíhjól í jólagjöf.

Tvíhjólið er þó petalalaust en með því að sitja á hnakkinum og nota fæturnar til að spyrna sér áfram þjálfar barnið jafnvægisskynið. Í upphafi stóð hann klofvega yfir hjólinu og gekk með því. Nokkrum klukkustundum síðar var hann sestur á hnakkinn og nú spyrnir hann sér hratt áfram og æfir sig að halda jafnvægi. Að öllum líkindum mun hann því eiga auðveldara með að læra að hjóla án hjálpardekkja en sum börn geta einmitt alveg sleppt þeim. Hjólið minnkar “stressið” sem mörg börn upplifa þegar þau fá sitt fyrsta tvíhjól því þau eru öruggari, með betra jafnvægi og þannig eru þau betur undirbúin fyrir hjól með petölum. Að auki er þetta frábært fyrir allan hreyfiþroska en Emanuel fer nú allar sínar leiðir ( líka á koppinn) á þessu fína hjóli og finnst það svakalegt sport :-)

Hjólið er hugsað fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára og við mælum að sjálfsögðu með þessu fyrir alla litlu vinina okkar.

ALOE BLACC - THE MAN

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Karen Lind

    1. February 2014

    Snilld!

    Og sammala með draslið i barnaherbergjum… þetta verdur eins hja mer thegar eg eignast barn :-) less is more!

  2. Hafdís

    1. February 2014

    Ég sá einmitt aldrei börn með hjálpardekk í Þýskalandi og ekki hér á Spáni. Bara allt fullt af litlum krúttum á þessum hjólum. Virkilega flott hugsun á bak við hjólin, en mér fannst þetta stór-furðulegt fyrst :)

  3. Sibba

    1. February 2014

    Þetta eru snilldar hjól…. Eeeen stelpur taliði endilega við mig þegar þið eigið eins og þrjú stykki:):):) þá fer less is more dóta þemað út um gluggann!! ;) hihihi

  4. Reykjavík Fashion Journal

    1. February 2014

    Mér finnst þessi svo æðisleg er einmitt búin að ákveða að kaupa svona tréhjól fyrir Tinnann minn :) Um að gera að þjálfa jafnvægisskynið sem fyrst – tala af reynslu þar sem ég var greind með óþroskaða rýmisskynjun fyrir tja bara 2 árum…. :( Sonurinn mun ekki verða eins og móðirin!

  5. Gunna

    2. February 2014

    Átti svona fyrir mína 3 ára, hún fílaði þetta aldrei. Svo þetta er misjafnt eftir börnum, en stórsniðugt ef þau fíla þetta :)

  6. Birgitta

    2. February 2014

    Tvíburadætur mínar áttu svona jafnvægishjól. Þær byrjuðu að hjóla á nokkrum mínútum á tvíhjóli þegar þær fengu sín fyrstu alvöru hjól. Þurftu aldrei hjálparadekk. Þessi hjól eru algjör snilld og ég mæli eindregið með þeim :)

  7. Dagný Björg

    7. February 2014

    Strákurinn minn fékk einmitt svona jafnvægishjól í 2ja ára afmælisgjöf í fyrra og hefur ennþá mjög gaman af! Í sumar fær hann síðan almennilegt hjól með pedulum.

  8. Sigrùn Erla

    7. March 2014

    Hvar færðu svona hljól?