fbpx

ÍSLAND

Ísland

Í staðinn fyrir að fara í helgarferð til Rómar kíktum við í vikuheimsókn heim til Íslands, mjög óvænt en skemmtilegt eins og alltaf.

Ég pakkaði hlýjum yfirhöfnum og góðum skóm í einum grænum og hentist með barnið út í bíl og brunaði með hann til Mílanó þar sem við tókum flugið heim – í kuldann.

ZARA úlpan sem ég bloggaði um hér kom því að góðum notum fyrir Emanuel sem og hlýja rokkarahúfan frá MOLO. Við fengum húfuna í Englabörnum fyrir áhugasama.

Við erum nú hætt ferðalögum í bili en það er kominn tími á að huga að öllum þeim spennandi verkefnum sem eru á döfinni hjá okkur nú í haust. Ég hlakka mikið til og tek á móti rútínunni með brosi á vör.

Mattar neglur

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Sonja Marsibil Þorvaldsdóttir

    9. September 2013

    Aðeins of gott að fá ykkur í smá heimsókn <3