fbpx

HALLOWEEN WITH H&M

BörnFötNýtt

ghostgif

startgif

h-m-kids-halloween-06

h-m-kids-halloween-02

h-m-kids-halloween-01

H&M Marie Antoinette Halloween costume for kids

 

 

 

 

Þar sem ég var stödd á flugvellinum í Frankfurt í gær og skrollaði niður á Instagram rakst ég á mynd á síðunni hjá HM_EUROPE  af nýju Halloween búningunum frá H&M. Ég greip andann á lofti og googlaði þetta að sjálfsögðu og komst að því að 25% af sölu á hverri flík rennur til UNICEF til hjálpar bættri heilsu og menntunar barna á svæðunum í kringum höfuðborgina Dhaka í Bangladesh. H&M hefur náttúrulega átt undir högg að sækja hvað þetta allt varðar og því er þetta gott framtak hjá þeim sem vonandi skilar sér til barnanna.

Sænski risinn sótti innblásturinn til masquerade-ball tímabilsins í Frakklandi í þetta skiptið. Maire Antoinette kjólar, Jolly Roger sjóræningahattar, Batman herðaslár og margt fleira sniðugt. Mér finnst þetta alveg ótrúlega vel heppnað og með því betra sem ég hef séð frá þeim lengi.

Þessar myndir eru svo sætar en næst þegar ég geng framhjá HM ætla ég aðeins að kíkja inn. Það er eitthvað svo krúttlegt að sjá börn í fallegum grímubúningum en ég myndi helst vilja hafa Emanuel þannig klæddann alla daga. Ef ég fengi að ráða myndi ég kaupa alla þessa kjóla á hann – hahah – en ég held það sé ekki í boði… ?

Video-ið fann ég á heimasíðu Lillenord og þar eru að finna fleiri dásamlegar myndir af búningunum ( sem ég þorði ekki að taka) – kíkið þangað til að sjá meira.

LKL II - ÚTGÁFUBOÐ

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

4 Skilaboð

  1. Hilrag

    17. October 2013

    aaaa hvað þetta er krúttlegt!

    x

  2. Rósa

    17. October 2013

    Þetta er ekkert smá sætt :)

  3. Sonja Marsibil Þorvaldsdóttir

    18. October 2013

    Vá ekkert smá krúttaðir búningar! Minnir mig á náttfötin í GAP búðinni í Milano! Sé svo eftir því að hafa ekki keypt þau á ÞN!

    • Ása Regins

      18. October 2013

      já ég veit það, þessi með beinagrindinni ! Ég kaupi þau fyrir okkur ef þau eru til næst þegar ég fer !!