Kannist þið við þennan ? Ef ekki, þá ættuð þið að kíkja á þennan póst hér.
Giulio var hress í dag og meira en til í myndatöku fyrir Trendnet. Ég hringdi nefnilega í hann og bað hann aðeins að koma og hitta mig á kaffibarnum hjá Nicolo. Tíu mínútum seinna var hann mættur, svona glæsilegur og til í einn kaffibolla.
Í dag var hann í bleikum sérsmíðuðum handmade skóm, ljósblárri skirtu, dökkbláum gallabuxum og flottum jakka í stíl. Til að gera þetta allt enn betra var hann með blómapoka og svo brosti hann svona blítt.
Þessi maður er sannkallaður gleðigjafi og augnakonfekt, eruð þið ekki sammála því ? :-)
Skrifa Innlegg