Við megum búast við brot af því besta beint frá stærstu hausthátíðunum á RIFF í haust. Gaman, drama, hryllingsmyndir og heimildarmyndir ..
Alþjóðlega kvikmyndahátíð Reykjavíkur verður haldin í 17.sinn þann 24.september næstkomandi og við bíðum spennt. Áhersla verður á evrópska kvikmyndagerð í tilefni EFA verðlauna sem afhent verða á Íslandi í desember. Margar myndir koma til Íslands beint frá stóru hausthátíðunum sem fara fram í byrjun september svo sem Feneyjum, Toronto og San Sebastian, því er um Norðurlanda- og Evrópufrumsýningar að ræða.
Dagskráin verður betur kynnt á komandi dögum en hér eru kynntar til leiks átta myndir sem sýna breiddina í dagskránni; glæpa-og hryllingsmyndir í bland við drama og gaman og heimildarmyndir af bestu gerð. Myndirnar verða sýndar á vefnum riff.is, svo allir landsmenn geta nú notið dagskrár og aðrir sem ekki eiga heimangengt.
200 Metrar/200 Metres
Beina leið frá heimsfrumsýningu á Feneyjarhátíðínni, elstu og einni virtustu hátí í heimi mun RIFF sýna kvikmynd palestínska handritahöfundarins og leikstjórans Ameen Nayfeh 200 metrar. Í myndinni segir frá átakanlegu ferðlagi hins palestínska Mustafa, sem býr á vinstri bakkanum, við að sameinast syni sínum sem liggur á sjúkrahúsi á hægri bakkanum. Aðeins 200 metra ferðalag verður að 200 km þrautagöngu þar sem smyglarar og aðrir vafasamir ferðalangar verða á vegi föðursins. Snilldarverk sem beðið hefur verið eftir.
Hunskastu út/Get the Hell Out
Hunskastu út kemur hingað frá heimsfrumsýningu á Toronto kvikmyndahátíðinni einni stærstu hátíð í heimi en þetta fyrsta kvikmynd leikstjórans Wang I-Fan í fullri lengd. Hér er á ferðinni alvöru hryllingsmynd í anda Covid19 um mann sem reynist sá eini á vinnustað sínum sem er ónæmur fyrir banvænum vírus er breytir fólki í uppvakninga.
Síðustu vordagarnir/Last Days of Spring
Kvikmyndir leikstjórans Isabel Lamberti eru á mörkum heimildamynda og leikinna mynda. Nýjasta kvikmynd hennar, Síðustu Vordagarnir, verður frumsýnd á San Sebastian kvikmyndahátíðinni á Spáni sem er afar virt hátíð um miðjan september. Í myndinni er sögð saga fjölskyldu sem býr í hinu ólöglega La Cañada Real í Madríd og lifir lífi sínu í biðstöðu. Í myndinni er teflt saman raunverulegu umhverfi og fólki í anda heimildamynda en tvinnað saman söguþræði sem ekki á sér stoð í raunveruleikanum.
Við stjórnvölinn/A L´abordage
Gamanmynd úr smiðju leikstjórans Guillaume Brac sem var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín í vetur , þar sem hún hlaut verðlaun FIPRESCI alþjóðlegra samtaka kvikmyndagagnrýnenda. Myndin segir af Félix sem verður ástfangin af Ölmu á hlýju sumarkvöldi í París. Þegar Alma þarf að stökkva upp í lest og halda til fjölskyldu sinnar í Suður Frakklandi ákveður hann að elta sálufélaga sinn. Í kjölfarið fer af stað grátbrosleg atburðarás þar sem margt úr fer skorðum og Alma virðist ekki sérlega ánægð með óvæntu heimsóknina.
Fröken Marx/Miss Marx
Kvikmynd í leikstjórn Súsönnu Nicchiarelli er segir af hinni frjálslegu og ástríðufullu Eleanor Marx, yngstu dóttur Karl Marx. Eleanor var í hópi þeirra forystukvenna sem fyrst leiddu saman feminisma og sósíalisma og tók þátt í baráttu verkafólks, barðist fyrir auknum réttindum kvenna og afnámi barnaþrælkunar. Myndin er meðal þeirra kvikmynda er keppa til aðalverðlauna Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, Gullna Ljónið.
André og ólífutréð/André and His Olive Tree
Afar áhugaverð heimildarmynd taívanska leikstjórans Josiah Ng. Í myndinni er sögð saga fyrsta taívanska Michelin stjörnukokksins André Chiang þar sem hann er að undirbúa lokun veitingastaðarins sem jafnframt var á lista yfir 50 bestu veitingastaði í heimi. Fylgst er með þessum einstaka kokki; við kynnumst vinnubrögðum hans í eldhúsinu, stjórnunarstíl og fáum innsýn í samband hans við eiginkonu sína.
Punta Sacra
Varpað er ljósi á hóp kvenna sem búa á jaðri samfélags sem er við að hverfa í úthverfi Rómar er kallast Punta Sacra. Myndin er í leikstjórn Francescu Mazzoleni og vann til verðlauna á svissnesku kvikmyndahátíðinni Visions du Réel nú nýlega.
Aalto
Mögnuð heimildamynd um ástarsögu hinna þekktu, finnsku hönnuða og arkitekta Alvar og Aino Aalto auk þess sem fjallað er um verk þeirra á áhugaverðan máta. Kvikmyndin er í leikstjórn Virpi Suutari og er byggð á viðamikilli heimildavinnu og frásögnum samtíðarmanna þeirra hjóna og rannsakenda úr fremstu röðum á verkum þeirra.
Úrval mynda verður jafnframt sýnt í Bíó Paradís og Norrænahúsinu í samræmi við gildandi reglur um samkomur. RIFF verður með veglega dagskrá þá 11 daga sem hátíðin stendur yfir en mun jafnframt standa fyrir kvikmyndasýningum í október og nóvember. Þær sýningar eru hugsaðar sem brú yfir til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna EFA sem til stendur að veita hér á landi í desember.
Allir í bíó!
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg