Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hreysti
Það eru óneitanlega skrítnir tímar núna og ýmislegt í gangi sem við höfum ekki séð áður. Verið er að fresta stórum íþróttaviðburðum og alls konar öðrum samkomum vegna COVID-19 veirunnar. Margir hafa ákveðið að vinna heima á næstunni og fækka ferðum sínum í líkamsræktarstöðvar.
Mig langaði bara að minna ykkur á mikilvægi þess að hreyfa sig samt sem áður. Það gerir svo mikið fyrir sál og líkama :)
Í samstarfi við Hreysti ætlum við að bjóða uppá 15% afslátt af æfingateygjum, æfingadýnum, ketilbjöllum og handlóðum með kóðanum ‘ArnhildurTrendnet’
Með þessum æfingatólum er auðvelt að setja saman fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar heima!
Hugmyndir af æfingum:
- Hliðar- og framskref með teygju utanum lappirnar
- Glute æfingar með teygjum
- Fram og afturstig með handlóðum (á staðnum eða yfir stofuna til dæmis)
- Hnébeygjur (hægt að hafa handlóð á öxlunum eða halda á handlóði á brjóstkassanum)
- Uppstig með handlóðum (ég mun örugglega nota stól eða sófaborðið haha)
- Stiff deadlift á annarri með handlóði
- Bulgarian squat (hægt að nota stól eða borð undir löppina)
- Handlóða bekkpressa
- Bodybuilder æfingar (bicep curls, tog, axlapressur)
- Axlaæfingar með teygjum
Svo mæli ég með að googla og finna einhverjar skemmtilegar æfingar sem henta þér!
Endilega skoðaðu á úrvalið á www.hreysti.is
Hægt er að fá vörurnar sendar heim fyrir 995 kr.-
Arnhildur Anna xx
Skrifa Innlegg