Góða kvöldið!
Í vikunni settist ég niður með elsku Birnu vinkonu og við ræddum um kraftlyftingar, hugarfar á mótum, tækni í hnébeygju og réttstöðulyftu og fullt fullt fleira sem skiptir mig máli varðandi lyftingar. Birna er nýlega farin að gefa út hlaðvörp undir nafninu Aðeins meira en bara GYM á spotify og ég mæli mikið með að hlusta enda er hún algjör meistari.
Við gætum örugglega spjallað endalaust um lyftingar en létum ca 40 mínútur duga í þetta sinn ?
HÉR er hægt að lesa smá samantekt á 101 síðunni og svo hægt er að hlusta á podcastið HÉR
Arnhildur Anna xx
Skrifa Innlegg