Flestir sem hafa lesið bloggið mitt vita hvaða dálæti ég hef á sundbolum. Það er svo miklu skemmtilegra og betra að fara í sund í vel sniðnum sundbol en (stundum) hálf lafandi bikiníi sem gerir línunum oftast engann greiða. Ef það er eitthvað sem ég kaupi mér aftur og aftur að þá eru það sundbolir en ég vel þá mjög vandlega og sleppi ekki að kaupa mér góðan bol ef ég rekst á hann. Ég var t.d í COS um daginn og fann þennan plein svarta, frábæra og stífa sundbol þar, sjá HÉR. Hann gerir nákvæmlega það fyrir línurnar sem við viljum að hann geri og því mæli ég með að þið kíkið á og mátið, ef þið eigið leið hjá slíkri verslun.
Ég og Victoria´s Secret fyrirsætan Doutzen Kroes deilum augljóslega sama smekk á sundbolum.
… og því er augljóslega núna komið að MÉR að eignast þennan svart/hvíta tigerbol frá ástralska merkinu We Are Handsome, sjá HÉR. Ég er gjörsamlega með hann á heilanum en það virðist vera algjörlega ómögulegt að fá hann. Ég er samt ekki búin að gefa upp vonina og með minni góðu heppni fæ ég hann í hendurnar einn góðan veðurdag ;-)
Þessi löngun mín í tigersundbolinn gekk svo langt að ég kannaði hvað tiger-barnasundbolurinn á petit.is væri til stór. Það þarf líklegast ekki að taka það fram, en hann passaði semsagt ekki ( haha!!). Mér finnst tigermunstur á börnum venjulega alls ekki skemmtilegt, en svona fallegar myndir er eitthvað allt annað og því myndi ég kaupa svona sundbol á skottuna mína ( ef ég ætti eina :-), og þá værum við í stíl í sundi í sumar :-)
Skrifa Innlegg