Það er sko aldeileis kominn tími á matarbloggi, þó fyrr hefði verið.. Í síðustu viku ákvað ég að hafa kjúklingalasagne í matinn en eins og oft áður var rétturinn eldaður algjörlega af fingrum fram. Útkoman var virkilega góð og sambýlingurinn minn heimtar að fá þennan rétt aftur fljótlega. Það verður ekki erfitt að láta það eftir honum í ljósi þess að rétturinn er einstaklega auðveldur í gerð.
Þú þarft :
- Kjúklingabringur
- Laukur, Graslaukur, Hvítlaukur
- Fersk chilí
- Rautt pestó
- Heilhveiti lasagneplötur
- Rjómaostur/Fetaostur
- Sesamfræ
- Krydd eftir smekk
Kjúklingabringur skornar niður og steiktar á pönnu upp úr kókosolíu ásamt kryddjurtunum(hvítlaukur, graslaukur, laukur og chilí) kryddið svo eftir smekk. (ég kryddaði t.d. með oreganó, sojasósu og cayennepipar)
Pestóið komið út í mixið, notaði 2 litlar krukkur.
Hér var ég búin að sjóða lasagne plöturnar í nokkrar mínutur áður en ég byrjaði að raða. Svo er það bara.. -lasagne plötur, kjúklingamixið ofan á ásamt sesamfræjum, síðan slumpa ég rjómaostinum&fetaostinum yfir eins og sést á myndinni, ég blandaði fetaostinum þarna með einfaldlega vegna þess að rjómaosturinn var alveg að klárast. Annars hefði ég bara sleppt honum.
Átti rucola&spínat salatmix inn í ísskáp og fannst upplagt að henda því með.
Strá svo nóg af osti&oreganó yfir og baka í ofninum þar til osturinn bráðnar og tekur lit.
Mmmh JÁ!
Ég neyddist til þess að taka myndirnar með símanum þannig að þið reynið að horfa framhjá því að þær eru kanski ekki alveg jafn girnilegar og vanalega. Bragðið aftur á móti.. nomm.
..
It’s really about time for a recipe from yours truly. Last week I made super delicious chicken lasagne, easy dish that will for sure be a regular at this household from now on. Start by frying sliced chicken breasts in the pan with some coconut oil, garlic, onion and chili. Then pour red pesto(I used 2 small jars, shown on pic.1) into the pan. After boiling the wholewheat lasagne pasta for a couple of minutes I began spreading the mix into a baking dish, first pasta – then the chicken pesto mix on top, fallowed by sesames seeds and cream cheese(pic.4). I had some mixed greens in the fridge so I threw it in there as well(pic.5) -couldn’t really harm ya. Topping it with some cheese and oregano(pic.6) before baking it in the oven until the cheese is melted and golden. Oh so nomm.
PATTRA
Skrifa Innlegg