fbpx

RFF 2017

RFF 2014 blogg

RFF2014

Það eru spennandi vikur framundan á Trendnet, en kannski stærsti viðburður í tískuheiminum á Íslandi, Reykjavik Fashion Festival, er á næsta leiti. Trendnet verður að sjálfsögðu í fremstu víglínu og mun í samstarfi við Coke Light halda úti sérstöku gestabloggi tileinkuðu hátíðinni. Þar verður verður fylgst með undirbúningi hátíðar og hönnuða, fjallað verður um allar sýningar, kíkt baksviðs ásamt því að fylgjast með götutískunni hjá gestum hátíðarinnar.

Við höfum fengið til liðs við okkur þrjár tískuskvísur og afbragðs góða penna sem halda úti RFF 2014 blogginu á Trendnet. Það eru þær Lísa Hafliðadóttir, Margrét Þóroddsdóttir og Rósa María Árnadóttir. Allar hafa þær brennandi áhuga á tísku og hönnun og hafa góða reynslu af skrifum. Við á Trendnet erum því mjög sátt með liðsaukann þessar vikurnar.

Þær Lísa og Rósa María hafa báðar góða reynslu sem umsjónarmenn Stílsins í Mónitor. Lísa var líka með okkur á RFF 2013 og Rósa María kemur fersk inn þetta árið.

mynd1

Lísa Hafliðadóttir

mynd af mer

Rósa María Árnadóttir

Margrét Þóroddsdóttir, sem einnig var með okkur á síðasta ári, hefur góða reynslu af skrifum og heldur úti sínu eigin bloggi um tísku og hönnun á Tumblr síðu sinni.

487577_10151310930211759_1188367531_n

Margrét Þóroddsdóttir

Við bjóðum því þessar föngulegu dömur hjartanlega velkomnar og hlökkum til að fylgjast með skrifum þeirra á þessu spennandi RFF bloggi Trendnets og Coke Light.

Við minnum fólk á að merkja sín TREND móment með #trendlight – frábærir vinningar í boði!

Trendkveðjur!

Takk fyrir lánið

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Martha Hermanns

    24. March 2014

    Æði, er mega spennt að fylgjast með❤️