Ég var vissulega ekki sú eina sem féll fyrir Óskarkjólnum hennar Lupita Nyong’o -þá sérstaklega fallega Nairobi bláa litnum en ljósbláar flíkur eru nokkuð áberandi um þessar mundir. Ég hef rekist á fjölmargar flottar ljósbláar kápur á netrúntinum mínum en flíkin hefur verið vinsæl á meðal fasjónista um allan heim. Sjálf er ég ótrúlega skotin í litnum þó að ég hafi aldrei áður verið mikil pastel dama, fullkominn vorlitur í ár! Myndi ekki slá hendinni á móti peysunni á mynd nr.2 og allar kápurnar hér að ofan eru meira en velkomnar í minn fataskáp.
..
Baby blue is the color of spring this year -I mean, how perfect was that Nairobi blue Prada dress on Lupita? I’m so into this color even though I’ve never been a pastel kind of girl, there’s something very charming about this sweet baby light blue. Would gladly wear all these coats above!
PATTRA
Skrifa Innlegg