fbpx

Pattra S.

BEACH SPREY

Ég fann þetta Lernberger Stafsing BeachSprey í Magasin fyrir nokkrum vikum síðan og þetta er algjör snilld. Það var einmitt notað í mitt hár í póstinum hér að neðan fyrir ykkur sem vilduð vita. Það skemmir heldur ekki fyrir að þetta er einnig hitavörn. Fullkomið sprey fyrir strandarhár elskendur eins og mig, gefur hárinu lyftingu ásamt fallega liði.

..

I recommend this BeachSprey from Lernberger Stafsing -it gives your hair a great texture as you can see on my last post. Perfect for a beach hair lover like me!

PS

NEW GIRL

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Harpa

    24. March 2013

    til a islandi? :)

    • Pattra's

      25. March 2013

      Þar sem ég hef ekki séð þetta merki áður þá veit ég því miður ekki svarið.. En tékka á Theodóru ;)

  2. Gerður

    24. March 2013

    Þarf að tékka á þessu en ég er búin að vera nota bumble and bumble surf spray, sem er mjög gott líka.

    • Pattra's

      25. March 2013

      Hef einmitt heyrt að BB Surf spreyið sé súper gott, ég á hármaska frá BB og fíla þetta merki mjög vel en mér finnst það svolítið dýrt. Surfspreyið kostaði aðeins meira en þetta sprey sem ég keypti og það var töluvert minna í brúsanum.

      Ég mun klárlega handa áfram að kaupa Beach Sprey -er að fíla það í tætlur :)

      • Gerður

        25. March 2013

        Já það er alltaf gott að spara, ég fékk surfspreyið ókeypis vegna þess að ég var komin með svo marga punkta á hárgreiðslustofunni minni í London :)

  3. Anný

    25. March 2013

    Beach Sprey er til frá L’anza healing haircare og er algjör snilld, fæst á Team Hárstudio faxafeni 14 :)