Ég sit hérna heima að hlusta á tónlist en oftar en ekki er John Mayer í spilaranum hér hjá okkur á kvöldin. Mér datt því í hug að segja ykkur sem búið í Köben, London eða Osló frá því að þessi hæfileikaríki tónlistarmaður verður með tónleika í þessum áðurnefndu borgum núna í oktober. Ég vona þó að allir viti af þessu og séu nú þegar búnir að tryggja sér miða – og ef svo er, góða skemmtun !!
Gerið það fyrir mig að láta ekki þessa tónleika framhjá ykkur fara. Þetta er uppskrift að dásamlegu kvöldi :-)
En ef þið eruð ekki spennt fyrir John að þá er líka í boði að fara á Bruno Mars, hann er nú líka skemmtilegur.
Endilega klikkið hér fyrir frekari upplýsingar og ef þið viljið kaupa ykkur miða.
Skrifa Innlegg