Nú er vetur konungur mættur til Verona og því tímabært að draga fram feldinn. Mr and Mrs Furs úlpan mín góða stendur alltaf fyrir sínu og brást ekki heldur í dag :-)
Þessa úlpu fékk ég fyrir tveimur árum og þá var hún sú eina sinnar tegundar í versluninni, og þó víðar væri leitað því þá var einungis ein úlpa búin til af hverri tegund. Hún er öll fóðruð að innan með feld af sléttuúlfi (E.coyote) en það gerir hana svona sérstaklega fallega og veglega.
Nú undanfarið hef ég tekið eftir að það er farið að selja svipaðar úlpur, þó ekki jafn veglegar því miður, meðal annars í Evu á Laugaveginum og Kultur í Kringlunni. Þetta er greinilega líka vinsælt trend í Danmörku en ég sá að það voru nokkrar búðir sem seldu úlpur í svipuðum dúr og ef mig minnir rétt að þá voru þær m.a fáanlegar í verslun sem heitir Noun.
Í Noun keypti ég mér einmitt líka mjög flotta brúna leðurskó og ef þið búið í Kaupmannahöfn að þá mæli ég með að þið kíkið þangað (og líka á heimasíðuna), þó þið séuð ekki í úlpuhugleiðingum. Þar gætu nefnilega leynst flíkur/skór sem eru fullkomnar í jólapakkann :-)
Skrifa Innlegg