Sara systir er J.Crew drottning Íslands og því kíktum við systur að sjálfsögðu með henni í þá búð og gengum alls ekki tómhentar út.
Armbandið er glænýtt og ekki komið á heimasíðuna þeirra og skórnir sem eru alveg skærbleikir eru á final sale og því ekki heldur fáanlegir á síðunni. Ég mæli þó engu að síður með því að þið kíkið á jcrew.com og ef þið eigið leið til Ameríku að þá megið þið ekki láta þessa búð framhjá ykkur fara.
.. og svo er mjög gaman að sjá myndirnar þeirra á Instagram undir notendanafninu J.Crew.
Skrifa Innlegg