Ég get sagt það með sönnu að síðustu 4 vikur lífs míns hafa verið þær brjálæðustu, vinnulega séð, sem ég hef upplifað!
Hef án gríns ekki sofið jafn lítið, verið jafn stressuð en afkastamikil síðan ég man eftir mér.
Það sem er að frétta er að Lífsstíll höf göngu sína á Stöð 2 vegna mikillar ánægju frá framleiðundum og áhorfendum (takk fyrir mig=)
Ég gerði eitt stykki Disney hárbók fyrir Ameríkumarkað.
Vann á Rauðhettu plús óteljandi greiðslur á kvöldin og daginn fyrir hitt og þetta.
Fór út á land í tvo daga með VOGUE og gerði 12 bls tískuþátt með þeim sem kemur í blaðinu í Desember.
Síðast en ekki síst var ég að vinna að þáttunum mínum og var að taka upp síðasta innslagið í dag.
Já, fór til Köben um helgina í brúðkaup systur minnar….
Þó svo að þetta sé hrikaleg mynd af mér þá leyfi ég þessari að fljóta með, en þarna er Sarah eigandi og stofnandi SKYN Iceland í spjalli við mig fyrir Lífsstíl. Ótrúlega flott kona sem ég lít mikið upp til!
Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður í spjalli fyrir Lífsstíl. Ég þrááái Pyro Pet kertin hennar!
Helga og Karítas í Ígló&Indí þegar ég tók viðtal við þær fyrir Lífsstíl. Ótrúlega falleg vinnustofa!
Stúdíóið í Disney myndatökunni. Fengum lánuð föt og props fyrir óhugnalega háar upphæðir og þökkum við kærlega fyrir alla þá hjálp sem við fengum og traustið. Þetta var ævintýralega fallegt.
Skipulagið fyrir myndatökuna…..sko mig, ég kann líka alveg smá að vera skipulögð =)
Ellen Lofts sá um stíliseringu, snillingurinn sá!
Brave!! =) =) =)
VOUGE!!!! Taska sem stíllistinn frá Vogue tók með sér í tökurnar =)
Við Ísak í góðum gír í tökunum =)
Hjónin á Strikinu í bongó blíðu.
Gyða sys og Per að segja JÁ =)
xxxxxx
Theodóra Mjöll
Þessa sjúklega flottu liti fékk ég að prófa á klærnar mínar fyrir nokkrum dögum þegar ég kíkti í heimsókn til Karinar Kristjönu sem heldur úti síðunni Nola.is .
Mér finnst mjög erfitt að finna fallega nude liti á naglalökkum en ef ég heillita neglurnar mínar (sem núna eru reyndar orðnar stuttar!?!?) kýs ég frekar nude liti en skæra og/eða sterka liti.
Þessi palletta er mjög nálægt því að vera hin fullkomna nude-litapalletta ekki satt??
Hér er smá um Bubblelina naglalökkin sem Karin Kristjana sendi á mig:
“Kili Anderson er stofnandi Bubblelina. Bubblelina var eitt af gælunöfnum hennar sem lítil stelpa. Hún er eigandi mjög vinsællar taning-salon í LA og með nail-salon. Hún er menntaður naglafræðingur og vildi gera sína eigin línu, fékk þetta soldið á heilann eins og hún sagði, sérstaklega eftir að hún datt niður á thermal formúluna sem hún er einna þekktust fyrir.
Öll Bubblelina naglalökkin eru 5-free (no toluene, camphor, formaldehyde, formaldehyde resins or dibutyl phthalate) og cruelty free. Einnig eru öll Bubblelina naglalökkin handgerð.
Hún er að slá í gegn úti og annar varla eftirspurn. Fyrirtæki hennar stækkar á ljóshraða, hún er ein af þeim sem fann uppá “it” vöru sem var nýtt á markaði og sló í gegn. Hún er komin með dreifingaraðila útum allan heim og það er hrikalega gaman að vera partur af þessu ævintýri enda er naglalakk tískan í hámarki núna :) “
Ég hef ekki verið að taka að mér að gera mikið af fermingargreiðslum síðustu ár, en ég gerði þessa hérna fyrir neðan núna um helgina í frænku kærrar vinkonu minnar sem ég gat ekki neitað.
Ég hef alltaf verið á móti því að greiða fermingarstelpum eins og litlar kerlingar og fagna því hvað þrettán ára stelpur vilja vera náttúrulegar í dag og með slegið hárið eða það hálft tekið upp.
Þessi fannst mér heppnast einstaklega vel =)
Ég uppgötvaði ekki fyrir svo löngu að bandarísk kona að nafni Sarah er eigandi og stofnandi húðvörumerkisins SKYN Iceland og flytur flest öll innihaldsefnin í vörunum sínum frá Íslandi til Bandaríkjanna.
Ég segi ykkur betur frá henni síðar en hún kemur til Íslands í næstu viku til að koma í viðtal við mig fyrir Lífsstíl!!! Sem ég er vandræðilega spennt fyrir!
Allavegana, ég hafði fyrst samband við Söru til að spurja út í vörurnar sem ég var að lesa um á netinu og hún sagði mér að vörurnar væru seldar á Íslandi, sem ég hafði ekki hugmynd um. En það er hún Karin Kristjana sem flytur þær inn og er með netverslunina Nola.is sem er mjög fyndið því ég hef oft farið inn á síðuna hennar og elska vörurnar sem hún selur, þar á meðal naglalökkin sem breyta um lit (fékk mér einmitt einn svoleiðis fyrir helgi sem ég veeeerð að sýna ykkur).
Í framhaldinu fór ég á fund með Karin þar sem hún gaf mér nokkrar vörur til að prófa frá SKYN Iceland. Þær eru ótrúlegar. Aldrei hef ég prófað húðvörur sem ég finn og sé húðina breytast við notkun.
Þetta krem hérna fyrir ofan er kremið sem ég er að tala um að hafi breytt húðinni minni.
Nú er ég með frekar góða húð. Ég set á mig brúnkukrem, set á mig meik og lausapúður, skyggingu og alls konar vörur sem ég hamra inn í húðina og fylli hana.
Ég fæ þó aldrei bólur sem betur fer en ég fæ fílapensla og oft finn ég fyrir því að verða fitug í kringum nefið og smá á enni.
Þegar ég setti kremið fyrst á mig sveið mér alveg svakalega í húðina. Fannst eins og hún væri að brenna af andlitinu á mér. Kælitilfinning og sviði og varð ég smeyk. Ég er með mikið gerviefnaofnæmi og fæ exem og roðbletti ef ég nota vitlausar vörur (vörur sem innihalda peru balsam). En ekkert gerðist. Enginn roði né exem. Ég prófaði aftur næsta dag og sama saga, sveið alveg svakalega og var alveg viss um að þetta væri ekki rétt. Áfram hélt ég þó að nota kremið og eftir nokkra daga var ég steypt í litlum ógeðslegum bólum útum ALLT andlit! Ég fékk vægt sjokk en þar sem ég fann kæliáhrifin þá hafði ég á tilfinningunni að þarna væri einhverskonar hreinsun að eiga sér stað.
Eftir að hafa notað kremið í 2 vikur þá fór ég að finna muninn. Bólurnar farnar, litlu holurnar í andlitinu búnar að lokast og húðin öll þéttari og stinnari. Ég er ekki að grínast en meikið helst betur á mér á daginn og húðin ljómar meira.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég get sagt með fullri hreinskilni að húðvara hefur breytt og haft sjáanleg áhrif á mína húð.
Nú er ég búin að nota kremið í ca mánuð og sviðinn er löngu löngu farinn og einingis notalega kælitilfinningin eftir sem er svo góð rétt fyrir svefninn.
Já, ég mæli með þessu (og það er ekki oft sem ég mæli með vörum skal ég segja ykkur)!!
Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður verður með glæsilega tískusýningu í Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld þar sem hún mun sýna sumarlínu ´14.
Frumsýnd verður í leiðinni fyrsta skartgripalína Andreu sem er brjálæðisleg.
Ég og Erna Hrund erum að sjá um lúkkið á módelunum sem verður mjög sumarlegt og kynþokkafullt.
Spennnnóóó!!!
Ég og Erna að testa förðun og hár fyrir sýninguna.
Nýja skartgripalínan er smekklega merkt Andreu.
Mood board-ið fyrir sýninguna.
Fínar símalínur og samlokurnar Andrea og Sara Regins. Meiri krúttin þessar tvær.
Loksins lét ég verða af því. Ég setti grátóna lit yfir hárið á mér…..segi ekki að hárið sé í besta standinu, en nú tekur við djúpnæringapakki og olíur til að vinna upp rakann sem ég missti við að aflita það og setja gráan tón yfir.
Það sem maður fórnar ekki fyrir rétta litinn =)
Ég er búin að fá ótrúlega margar fyrirspurnir um jakkann minn sem ég fékk mér nýlega og elska út af lífinu.
Fyrir þá forvitnu er hann frá Samsöe Samsöe og fékkst í EVU á Laugaveginum =)
Nú vantar mig smá hjálp frá ykkur. Ég er að leita að níu stelpum á aldrinum 6-12 ára til að taka þátt í spennandi verkefni með mér eftir tæpar tvær vikur.
Ef þið eigið dásamlegar stelpur eða frænkur sem þið getið bent mér á, væri það mér ómetanlegt!
Ég leita að flottum og töff stelpum frá:
Asískum uppruna
Afrískum uppruna
Suður-amerískum uppruna
Indverskum uppruna
Íslenskum uppruna
………………
Til að taka þátt þá þurfið þið að senda mér tölvupóst í netfangið theodora.mjoll@gmail.com með mynd af barninu bæði framan og aftan á hárið. Takið eftir að ég get ekki tekið þær með sem að senda einungis eina mynd. Myndin þarf að vera skýr og sýna hárið og andlit barnsins vel. Einnig þarf ég nafn forráðamanns og símanúmer, aldur barns og nafn =)
Barnið þarf helst að vera með þykkt og mikið hár, má alls ekki vera hársárt og vant því að koma fram (ekki feimið).
xxx