Kopartrendið heldur áfram mér til mikillar ánægju og fann ég þessa hillu frá NEW TENDENCY eftir hönnuðinn Sigurd Larsen, sem kæmi sér mjög vel á ganginu heima…
Hversu fallegt!

Kopartrendið heldur áfram mér til mikillar ánægju og fann ég þessa hillu frá NEW TENDENCY eftir hönnuðinn Sigurd Larsen, sem kæmi sér mjög vel á ganginu heima…
Hversu fallegt!

Face-lift in a bag er eitt af frábærum húðvörum SKYN Iceland. Eins og ég hef bloggað um áður þá hefur vörumerkið heltekið mig alla og hef ég ekki fundið eins mikinn mun á húðinni minni eins og eftir að ég byrjaði að nota vörurnar og þá sérstaklega kremin.
Varan kemur í pakka með nokkrum misstórum púðum sem raðaðir eru á mikilvægustu staði andlitsins til að fá bestu útkomuna, á hökuna og í broshrukkurnar, undir augun og á ennið.
Þeir eru svo látnir bíða í 10 mínútur á andlitinu og fylgir þeim notarleg kuldatilfinning sem varir í marga klukkutíma eftir að þeir eru teknir af. Það má segja að þetta sé eins og hressandi expressóbolli fyrir andlitið, það gjörsamlega lifnar við!
Þetta verða allir að prófa!
Ég gat í alvörunni ekki brosað meira en þetta fyrir myndavélina haha… En svona líta púðarnir út á andlitinu.
Svo var ekki amarlegt að fá að kíkja í pokana frá Nola.is handa Justin og Jessicu vinum mínum, en þau fá glaðning frá SKYN Iceland fyrir tónleikana.
Ég bauðst auðvitað fram hjálparhönd og færa þeim þetta persónulega, svona til að vera kurteis….á eftir að fá svar…..=)
xxx
TheodóraMjöll

Balmain hárið er eitt vandaðasta vörumerki í heiminum hvað varðar gervihár og hárlengingar úr alvöru hári.
Í reglulegri heimsókn minni á heildsöluna ISON (sem flytur inn Balmain hárið) rak ég augun í þennan dásamlega snúð og gat ég ekki farið út án hans. Þetta er hinn fullkomni ásetti snúður sem tekur í alvörunni 2 mínútur að setja upp en lítur út eins og klukkutíma greiðsla hjá hárgreiðslukonu.
Ég fékk Evu Rakel vinkonu mína til að vera tilraunadýr og hún skellti sér í WOW Air búninginn sinn til að máta við greiðsluna….
Með snúðinum fylgja spennur og klemma til að halda honum föstum.
Hér koma leiðbeiningar um hvernig hægt er setja upp þennan dásamlega snúð.

1. Settu hárið allt í tagl. Flott er að túpera hárið aðeins að ofan til að fá lyftingu í rótina.
2. Taktu hárið úr taglinu og snúðu því utan um taglið. Spenntu snúðinn niður með spennum. Best er að ýta spennunni inn í snúðinn.
3. Taktu snúðinn og opnaðu klemmuna inn í honum.
4. Færðu snúðinn yfir hárið og klemmdu hann upp við efri part teygjunnar.
5. Festu snúðinn upp við rót hársins með spennunum sem fylgdu með. Best er að krækja öðrum anga spennunnar i snúðinn og hinn í rót hársins og ýta henni svo inn í hárið.
6. Passaðu að snúðurinn sé vel spenntur niður allan hringinn.
…..taadaaa….. snúðurinn tilbúinn!

Ég og Ólíver fórum til Noregs í enda Júlí til mömmu&pabba, en þau búa í dásamlegri sveit rétt fyrir utan Osló.
Eins og sannur Íslendingur leit ég við í H&M og fann þar H&M home deild á efstu hæðinni í einni versluninni. Úrvalið var ekkert stórkostlegt, en eins og afgreiðsludaman sagði, þá rýkur allt það “góða” út um leið og það kemur inn í búðina. Ég ætlaði mér að kaupa marmara sængurverasett og alls kyns góðgæti sem ég kynnt mér í nýjasta bæklingi H&M home (sem er dásamlegur) en ekkert af því var til.
Ég fann þó þessa koparstjaka hérna fyrir neðan og er ótrúlega ánægð með þá, fyrir utan að þeir beigluðust smá í ferðatöskunni….en það verður bara að hafa það…. =)
Sjónvarpsskenkurinn sem stjakarnir sitja á klæddum við Emil með marmaralímmiða fyrr í sumar. Sýni ykkur betur frá honum seinna=)

……….
Fanney Björk Friðriksdóttir
fanneybjork@gmail.com
……….
Innilega til hamingju með nýja krullujárnið þitt!!
Sendu mér tölvupóst í netfangið theodora.mjoll@gmail.com fyrir frekari upplýsingar =)
……..
Vegna gríðarlega góðrar þáttöku ætlar Bpro að gefa fleirum heppnum vörur frá HH simonsen!! Meira um það síðar =)

Afmælisgjafagleði Trendnets heldur áfram og að þessu sinni ætla ég ásamt Bpro sem er heildsalan á bak við frábæru járnin HH Simonssen að gefa einum heppnum lesanda krullujárn að EIGIN VALI.
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að ég er gríðarlegur aðdáandi HH simonsen járnanna og gerði bók fyrir þá í fyrra þar sem ég stúderaði öll járnin og sýndi hvernig þau virka. Einnig voru gerð myndbönd samhliða sem hægt er að nálgast á Youtube.
Það eina sem þarf að gera til að komast í pottinn er að kvitta hér undir hvaða krullujárn þig langar í og “læka” facebook síðu HH Simonssen .
Ég dreg svo út einn heppinn lesanda á miðvikudaginn =)
Takk fyrir að lesa Trendnet, án ykkar væri síðan ekki til!
xxxx

Ég og Emil skelltum okkur á Bryan Adams í Hörpunni í gær og get ég með sanni sagt að ég var með gæsahúð allan tímann.
Ég og æskuvinkona mín Þóranna hlustuðum á Bryan Adams seinni hluta grunnskólagöngunnar og kunnum lögin hans orð fyrir orð utan af. Við ætluðum að fara saman á tónleikana en þar sem hún býr á Akureyri komst hún ekki með….Emil þó til mikillar skemmtunar þar sem hann naut sín líka í botn með öskrandi eiginkonunni sem var með tárin í augunum af aðdáun allan tímann á Bryan.
Bryan Adams er auðvitað snillingur snillinganna í að skifa fallega og ljóðræna, ástmikla texta og hver man ekki eftir ….”When you see your unborn children in her eyes, you know you really love a woman”. Vá, þvílík lína!
Þið sem fóruð ekki…..greyið þið! =)

Eitt af mínu uppáhalds á instagram er @meandmybentle_com
Fyrirtækið býður upp á margs konar þjónustu en ég geri mér ekki fullkomlega grein fyrir því nákvæmlega hvað það er. Heimasíðan meandmybentley.com er mjög óskýr hvað varðar stefnu fyrirtækisins og hvað þeir í raun gera, en það er annað mál.
Ástæðan fyrir því að ég er að deila þessu með ykkur er sú að þeir (eða þær?) deila ótrúlega fallegum minimalískum myndum sem harmorera svo vel saman og eru algjört augnakonfekt. Þemað eru hvítar og gráleitar myndir þar sem falleg/klassísk hönnun og einstök næmni fyrir smáatriðum í myndunum er ríkjandi. Myndablandan er fullkomin þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, vöruhönnun, grafísk hönnun, bílar, tíska og fylgihlutir blandast saman á notalegan hátt sem gaman er að skoða.

Fyrstu myndirnar úr Frozen bókinni sem ég var og er að vinna í þessa stundina fyrir Disney í USA hafa litið dagsins ljós.
Hversu fallegt er þetta?
Kv ein stolt *roðn*

Þið sem eruð að fara út á land um helgina þá er stór peysa og þröngar buxur eitt af þeim átfittum sem klikkar seint og á eftir að koma einhverjum ykkar í svakalega gott skap =)
Ég er sjúk í þessa gulu hérna fyrir ofan sem Elín vinkona mín er í……

