Grænkál (Kale á ensku) flokkast sem ofurfæða því það er eitt næringarríkasta grænmeti sem fyrirfinnst.
Það inniheldur m.a. A, C og E vítamín, járn, kalk, magnesíum og fólínsýru og hefur góð áhrif á ristil, þarma og lifur.
Grænkál er kjörið í ávaxtaþeyting, súpur, salöt, pottrétti, gufusoðið eða léttsteikt á pönnu með öðru grænmeti.
Grænkál er bragðgott, einkum ef það hefur náð að frjósa, því frostið örvar niðurbrot á mjölva þannig að það verður sætara. Í mörgum löndum er grænkál vinsælt grænmeti og er selt í álíka magni og höfuðkál.
Innihald í 100 g
|
|
Vatn 85 g
|
Orkurík efnasambönd
|
|
Prótein 5,0 g
|
Trefjar 4,3 g
|
|
Kolvetni 7,3 g
|
Fita 0,6 g
|
|
kj 235
|
kcal 56
|
Steinefni
|
|
Járn 2,3 mg
|
Kalk 200 mg
|
Vítamín
|
|
A Ret. ein 850 µg
|
B1 0.15 mg
|
|
B2 0.29 mg
|
Niacin 2,8 mg
|
|
C (askorbínsýra) 150 mg
|
Einnig eru rannsóknir sem sýna að grænkálið getur komið í veg fyrir krabbamein og er ein auðveldasta-heilbrigða leiðin til að léttast!
…………
Ég finn ótrúlegan mun eftir að ég bætti grænkáli í mitt daglega mataræði. Meltingin er betri og ég kúka miklu betur (haha sorrry, en þetta er satt!). Ég finn að ég er orkumeiri og tilbúnari í daginn! Einnig er mælt með fyrir óléttar konur að borða grænkál þegar hægðirnar eru að valda þeim vandræðum, sem er mjög algengt vandamál.
Það sem ég hef verið að gera er að saxa grænkál mjög smátt og set það í poka og inn í frysti. Svo bæti ég því út í þeytinginn minn á morgnana eða um miðjan daginn. Stundum á kvöldin!
………
Uppskrift af FULLKOMNUM grænkálsþeyting:
Banani og vatn
Chia fræ
Frosið mangó
Tvær lúkur af frosnu grænkáli
…….

Einnig er uppskrift að grænkálssnakki búið að fara eins og eldur um sinu á netinu síðustu vikur…á eftir að prófa það!
xxxx
Theodóra Mjöll
Heimildir: www.islenskt.is, lifandimarkadur.is, www.whfoods.com
Hææ ætlaði bara að minna ykkur á instagram leikinn sem er í gangi. Ef þið merkið ykkar krullumóment með hashtagginu #trendkrullur getið þið unnið járn frá HH simonsen að EIGIN vali og körfu fulla af hárvörum frá Label.m ásamt því að fá frítt á krullunámskeiðið okkar Baldurs næsta miðvikudag…
Til MIKILS að vinna svo endilega takið þátt!
Vinningshafi verður dreginn út eftir helgina =)
Þar sem rúmt ár er komið síðan hún Aldís yndislega tók myndirnar af okkur á Trendnet fyrir borðann á blogginu, þá ákváðum við að það væri kominn tími á nýja mynd. Enda breytist maður jú gríðarlega mikið á milli ára ekki satt? =)
Íris Dögg ljósmyndari snillingur með smjöri og sultu, tók nokkur okkar í myndatöku í morgun og erum við allar gríðarlega spenntar fyrir útkomunni, enda ekki á hverjum degi sem maður fær fagljósmyndara til að taka mynd af sér.


Pattra auðvitað rúllaði þessu upp, enda erum við að ræða um eina heitustu píu landsins ;)

Erna Hrund að gera sig fína =)

Íris, Pattra og Erna Hrund að hlægja að brandaranum mínum…(einmitt)

Alvarlega pían mætt….

Íris og Andrea í kasti yfir öðrum brandara sem ég sagði….



Sveinsdætur =)

Íris Dögg er ein af flottustu ljósmyndurum sem ég hef kynnst. Ótrúlega fagleg, dugleg og brjálæðislega brosmild. Það er ekki slæmt kombó!

Vilt þú læra að krulla og bylgja hárið ?
Áttu krullujárn en kannt ekkert á það? Langar þig að fá smá liði eða miklar krullur en veist ekkert hvernig á að framkvæma það, eða það tekur þig alltof langan tíma svo þú sleppir því og endar með hárið í sama snúðinum dag eftir dag?
Ég og Baldur Rafn hárgreiðslusnillingur ætlum að bjóða kvenþjóðinni upp á almennilega krullu- og bylgjukennslu miðvikudaginn 17.september frá 19:30-21:30 í heildsölunni Bpro, Ögurhvarfi 4.
Baldur Rafn verður með góða fræðslu um mikilvægi þess að velja réttu hárvörurnar sem hentar hverjum og einum. Svo mun ég kenna allt frá hversdagskrullum upp í hátíðarkrullur á einfaldan og skilvirkan máta og eru þáttakendur hvattir til að koma með óskir um kennsluefni sem verður einnig farið í.
Á námskeiðinu er hægt að versla hárvörur frá Label.m og járn frá HH simonsen á sérstöku Trendnet- tilboði – 25% afslætti.
Námskeiðið kostar 6000kr og komast einungis 15 konur að til að tryggja góða og persónulega kennslu.
Skráning á námskeiðið og frekari upplýsingar eru í netfanginu theodora.mjoll@gmail.com
………
Fram að námskeiðinu fer fram skemmtilegur instagramleikur þar sem allar konur (og karlar?) eru hvattar til að gera fallegar krullur í hárið á sér og merkja myndina með hashtagginu #trendkrullur
Vinningshafinn verður svo dreginn út í næstu viku og fær FRÍTT á námskeiðið, krullujárn frá HH simonsen að EIGIN vali og gjafakörfu fulla af hárvörum frá Label.m
Hlakka til að sjá myndirnar ! =)
xxx
Theodóra Mjöll
Ég hef eytt ófáum klukkustundum í að stúdera fléttur, ómögulegar og mögulegar. Þegar ég leita mér að innblæstri fyrir nýjar hárgreiðslur þá skoða ég vanalega ýktar og óútreiknanlegar hárgreiðslur eða form sem ég svo tóna niður eða fæ einhverjar hugmyndir af. Jafnvel þótt ég sé að leita mér að hugmyndum fyrir eitthvað “loose” þá horfi ég vanalega á það sem er formfast bara til að ögra huganum og til að ýta mér lengra áfram. Fá mig til að búa til eitthvað nýtt og spennandi.
Þessir fléttubrjálæðingar eru að veita mér innblástur þessa stundina….
Ein af fallegustu hársíddum að mínu mati er millisíddin. Hár sem liggur ofan á öxlunum eða nær rétt fyrir neðan. Hár sem er klippt beint, með smá styttum eða engum. Með topp eða engum…skiptir ekki máli, millisíddin klæðir nánast ALLA.
í millisíddinni er auðvelt að gera hárið fallegt, auðvelt að setja það upp og auðvelt að móta það, alveg sama hvort hárið er þykkt eða þunnt/fíngert.
Það er langt í það að ég fari aftur í sítt hár, ég er að elska millisíddina alltof mikið!
Einn af þeim litum sem ég er gjörsamlega dáleidd af þessa stundina er nude pink (er nakinn bleikur góð þýðing lol?).
Ég á allt í einu ótrúlega mikið af bleikum flíkum- yfirhöfnum og buxum sem dæmi, er með nude pink neglur og vel allt í kringum mig í þessum blessaða lit. Þó er grár og blár einnig í sama uppáhaldi og sá bleiki.
Leyfi dásamlegum myndum að tala sínu máli….
Heildsalan IceCare hafði samband við mig á dögunum til að kynna mig fyrir töflunum Hair Volume sem þau flytja inn. Töflurnar eru frá danska heilsuvörumerkinu New Nordic og eiga að styrkja hárið, efla hárvöxt OG þykkja það. Þetta hljómar nánast lygilega en ég tók mína fyrstu töflu í dag og ætla að prófa og sjá hvort þetta virki.
Ég fékk sendar 30 töflur og ætla að taka eina á dag (eins og mælt er með) og læt ykkur svo vita eftir 30 daga hvernig og hvort þetta virki. Ég er bara nokkuð spennt! =)

Töflurnar innihalda:
Elftingu (horsetail extract)
Epla extract
Hirsi (millet extract)
Amínósýrur (L-Cysteine og L-methinonine)
Bíótín
Pantótenat sýra
Zink
Kopar
………………….
Mér sýnast innihaldsefnin vera nokkuð mögnuð, svo ég efast ekki um að þetta eigi eftir að gera mér gott hvort sem hárið vex meira eða ekki…
xxx
Theodóra Mjöll
Eitt af þeim skemmtilegu trendum sem má sjá með haustinu er sleiktur snúður (slick bun) sem mér þykir einstaklega fallegur og elegant.Hægt er að útfæra hann á margan hátt og staðsetja hann hvar sem er á höfðinu.
Það mætti segja að þessi tekur við af úfna snúðinum (messy bun) sem er búinn að vera í gangi mjög lengi og eeer svo þægilegur. Svo stelpur, næst þegar þið ætlið að henda hárinu upp í snúð, gerið hann aðeins sleiktari en þið eruð vanar. Þetta tekur tíma að venjast, sérstaklega fyrir þær sem eru hvað vanastar að vera með úfinn snúð, en þetta er kærkomin breyting. =)
Hönnunarfyrirtækið RAFA kids er eitt af fáum húsgagnafyrirtækjum í heiminum þar sem hönnunin og vörurnar snúast einungis að börnum og þörfum þeirra. Ég er ástfangin af hönnuninni og útsjónarseminni og óska þess að hægt væri að fá vörurnar hér heima á Íslandi.
Sagan á bak við fyrirtækið er mjög skemmtileg:
RaFa-kids originated from the shared dream of two married architects. Two people, who in whatever they do, put all their soul and energy into it. Agata takes care of the esthetic side of the designs. Arek is the technical brain of the duo. Because of our different interests and skills, our designs are wildly discussed and analyzed in a long working process. We like it a lot! The world of designing for children opened up to us after the arrival of our two sons, Frank and Robert. We wanted to design high quality and good looking products for them. That is how the first bed for our older son was born. After making it we received so many nice reactions and requests that we decided to realize our dream of starting a small company. We called it RaFa after first letters of our family members. Our mission is simply to make good and affordable quality design objects for children.
……



