Vegna vinnunnar minnar þá sé ég reglulega mörg falleg og hugmyndarík heimili, en á einu slíku um daginn voru margir litríkir hnífar á segulstáli á veggnum við eldavélina og mig hefur síðan þá langað að eignast slíkt. Ekki bara hnífasegulinn, heldur líka nokkra fagra hnífa.
Á dögunum var mér svo bent á Keris sem er nýtt íslenskt fyrirtæki sem hannar og lætur framleiða fyrir sig litríka keramík hnífa. Ég sem hef aldrei heyrt um slíkt áður forvitnaðist aðeins á heimasíðunni þeirra en þar segir “Keramik hnífar eru loksins að ryðja sér til rúms í vestrænum ríkjum eftir að hafa verið staðalbúnaður í Japönskum eldhúsum í áraraðir. Undirstöðuefnið í hnífunum frá Keris er Zirconica og er það næsta efni á eftir demöntum í “herslu”. Þeir eru viðkvæmari en stálhnífar vegna þess hve “harðir” þeir eru. Þeir brotna ekki nema við hátt högg á harðan flöt. En á móti kemur að bitið er beittara og það endist miklu, miklu, miklu lengur.“
Hmmm ég er smá spennt fyrir þessu, en þið getið skoðað þetta nánar á heimasíðunni þeirra hér og séð fleiri liti:) Fyrir áhugasama þá fást hnífarnir í Tékk Kristal, Búsáhöldum Kringlunni og Art Form á Skólavörðustíg!
Á netvafri mínu í gær rakst ég á þetta dásamlega speglaborð til sölu á facebook-sölusíðunni Húsgögn Retro og á bara 5 þúsund krónur.
Mér þótti það nú ekki mikið og var því ekki lengi að skella mér á það. Það er komið með sinn stað á heimilinu, og vekur miklu lukku (hjá mér).
Á myndinni sést nýja dásamlega Eivör teppið frá Ikea og Stockholm púðinn. Lampinn heitir AJ og er eftir Arne Jacobsen, en hann er ég bara með í smá láni frá Epal.. en mikið er hann fallegur!
Heimili dönsku listakonunnar Tenku Gammelgaard hefur birst oft og víða og ég hef þó nokkrum sinnum birt myndir hér frá fallega heimilinu hennar sem ég virðist ekki fá nóg af. Hér er það enn á ný, þó komið í jólabúning í þetta skiptið:)