Danski húsgagnaframleiðandinn Montana sendi nýlega frá sér þessar dásamlegu og litríku myndir af baðherbergislínunni þeirra en hægt er að fá Montana innréttingar og hillur í 30 nýjum litum sérvöldum af heimsþekkta danska litasérfræðingnum Margrethe Odgaard.
Sjáið þessar æðislegu litasamsetningar, algjör baðherbergisdraumur!

Montana er eitt þekktasta hönnunarmerki dana, stofnað árið 1982 af Peter J. Lassen. Montana hillurnar er hægt að sérsníða að smekk hvers og eins og er hægt að velja úr óteljandi litum. Montana fæst í versluninni Epal fyrir áhugasama.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Þetta glæsilega 360 fm heimili í Chicaco var endurhannað af breska innanhússhönnuðinum Pernille Lind og er staðsett í sögufrægu Frank Lloyd Wright hverfi – þar sem heimsþekkti ameríski arkitektinn bjó, starfaði og hannaði 25 byggingar.
Kíkjum í heimsókn –



Myndir : Yellowtrace
Til að sjá heimilið í heild sinni og lesa meira um hönnunina smellið þá hér –
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Á óskalistanum þessa stundina situr fallegt plakat eftir Hein Studio sem gerð eru fyrir dásamlegu hönnunarverslunina Stilleben sem staðsett er í hjarta Kaupmannahafnar. Ef þið eigið leið til kóngsins Köben á næstunni þá hvet ég ykkur til þess að líta við hjá Stilleben, ég lofa ykkur því að það er erfitt að koma tómhent/ur þaðan út.
Hein Studio er danskt hönnunarmerki stofnað af Rebeccu Hein Hoffmann og skapar hún meðal annars einstaklega falleg plaköt sem fást í vel völdum hönnunarverslunum víða um heim þó ekki á Íslandi. En fyrir Stilleben hannaði hún sérstaklega plakötin sem sitja á mínum óskalista, sem eru eftirprentanir af handgerðum úrklippum af ýmsum plöntum. Nýlega bættust við fleiri úrklippur við Stilleben línuna svo af nógu er að velja.
Því miður þá sendir Stilleben ekki til Íslands – að minnsta kosti ekki veggspjöld svo ég krossa fingur að ég finni leið til að verða mér úti um eitt verk en ég á þó mjög erfitt með að ákveða hvaða litur yrði fyrir valinu, svo mörg falleg. Ég sé fyrir mér stórt plakat í eldhúskróknum mínum sem er bleikur, svo líklega yrði svart fyrir valinu þó svo að bláa, fjólubláa og gula gæti líka komið mjög vel út! Hvað finnst ykkur flottast?
Stærðirnar sem í boðu eru A5, A3 og 70×100 cm.



Myndir via Stilleben
// Til að skoða úrvalið smellið þá hér.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Instagram innblástur dagsins kemur frá hinni þýsku Swantje sem starfar sem grafískur hönnuður og innanhússstílisti. Heimilið hennar er persónulegt og skemmtilega innréttað í fallegum litum. Ég vona að þessar myndir veiti ykkur innblástur eins og mér.


Mæli með að fylgja @swantjeundfrieda
Það er eitthvað svo látlaust og fallegt við þetta heimili, það heillaði mig alveg uppúr skónum.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu