fbpx

Topshop vor/sumar 2010

mmmmm væri sko til í mjög margt af þessu!
En núna þarf ég að bíta í það súra epli að Topshop er ekki í minni borg… og trítla yfir í HM í staðinn… æj ég syrgi það nú ekki of mikið, ætti samt að vera komin með gullkort þar á bæ og mynd uppá vegg fyrir að vera viðskiptavinur ársins.
Þetta er orðið slæmt…

-S

Júniform

Umfjöllun



Júniform er mikið á milli tannana á fólki í dag.

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að stöllurnar Ragnhildur Steinunn og Eva María hafa mjög oft klæðst Júniform hönnun í sjónvarpinu, og þá sérstaklega Ragnhildur Steinunn.
Birta Björnsdóttir hönnuður og eigandi Júníform er núna harðlega gagngrýnd opinberlega fyrir að vera ekki menntaður fatahönnuður og fylgja ekki ríkjandi tískustraumum í hönnun sinni.
En fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands sá sig knúna til að senda Evu Maríu og Ragnhildi bréf ásamt því að senda Fréttablaðinu afrit að bréfi sínu;

“Sæl.Þið stöllur voruð í einhverjum ljóstustu kjólum sem ég hef séð í kvöld í sjónvarpinu.Þið hjá RUV eigið berið þá ábyrgð að sýna ávalt það sem er best í menningu, hönnun og listum.Ykkur tókst í kvöld að upphefja eitthvað það versta sem er að gerast í fatahönnun á Íslandiog sýna stórkostlegan skort á fagmennsku og það ekki í fyrsta skipti.þetta myndi ekki gerast hjá BBC.Kveðja.Linda Björg Árnadóttir.Fagstjóri í fatahönnun við LHÍ”


Mjög svo ófagmannlegt bréf að mínu mati.

En Marta María á Pressunni fjallaði líka um þetta mál þann 16.febrúar.

Hver getur dæmt um hvort flík sé ljót eða falleg? Ég verð að játa að mér fannst kjólarnir fantaflottir. Linda Björg talar um í bréfinu að kjólarnir hafi ekki verið í takt við ráðandi tískustrauma. Bíddu, hvað á hún við? Fyrir það fyrsta voru kjólarnir gráir að lit. Síðast þegar ég vissi var grái liturinn móðins. Þar að auki voru kjólarnir skreyttir með pífum eins og hönnuðir á borð við Dior og Chanel eru svo hrifnir að.”

Og nú í dag skrifaði Vala um þetta mál á Pjattrófunum

Nú er ég nokkuð viss um að Marta María og Birta í Júníform eru vinkonur og þessvegna er Marta María sár fyrir hönd vinkonu sinnar og reynir að koma henni til varnar.

Ragnhildur Steinunn virðist reyndar hafa tekið sérstaklega miklu ástfóstri við Júníform og sést nánast öll kvöld í fatnaði frá þeim. Það er alveg gott og blessað að vilja ”auglýsa” fatnað vinkonu sinnar en það væri vel þegið af hönnuðum þessa lands að þær stöllur í sjónvarpi myndi sýna meiri fjölbreytileika og klæðast hönnun fleiri hönnuða en Júníform og Spakmannsspjara. Þeir eru jú mikið fleiri. RÚV er miðill í almannaeign og starfsfólk þessa miðils ætti að taka mið af því fá ráðgjöf hæfileikaríkra fagaðila til að sjá um uppsetningu allrar umgjarðar sjónvarpsefnis í beinni, allt frá sviðsmynd til klæðnaðar og förðunar, og byggja þetta upp á fjölbreytni frekar en klíkuskap.
Fyrir 2 klst síðan birti Birta Björnsdóttir eigandi Júniform bréf sem hún skrifar til rektors Listaháskóla Íslands þar sem hún fer fram á opinbera afsökun frá skólanum.
Hvað er í tísku og hvað er góð hönnun eða slæm? Hefur Listaháskólinn það vald að segja til hverju sinni hvað það er sem er í tísku, sérstaklega á þann hátt sem gert hefur verið nú? Hvað gefur hönnuði nægan trúverðugleika til að dæma hönnun annarra hönnuða á sama markaði á þennan hátt? Það er eitt að hanna stöku kjól fyrir sýningar og viðburði en annað að halda úti vel reknu fatamerki á íslenskum markaði eins og Júniform hefur ætíð gert. Að hanna falleg föt sem fólk vill kaupa og klæðast er engin hægðarleikur. Það ætti Linda að vita manna best því skemmst er að minnast vofveiflegs gjaldþrots fatamerkis hennar, Crylab, þar sem sviðin jörð og kröfur í tómt þrotabú var það eina sem sat eftir. Hvaða alvöru hönnuður hannar föt sem enginn vill kaupa? Það er auðvelt fyrir hana að standa í sínum fílabeinsturni og níða þá sem vel gengur að selja hönnun sína.”
Væri eðlilegt að fagstjóri leiklistardeildar Listaháskólans gagnrýndi Jón Gnarr og RÚV fyrir leik hans í áramótaskaupinu með orðunum “mér þykir leikur hans lélegur”, og eins um leik Péturs Jóhanns í Fangavaktinni með orðunum “einhvað það versta sem er að gerast í leiklist”. Báðir þessir leikarar eru ófaglærðir en þrátt fyrir það einir ástsælustu leikarar þjóðarinnar. Að sjálfsögðu eru fagstjóri leiklistardeildarinnar og fagstjórar annarra deilda innan skólans meiri fagmenn en það.
Þar sem mér, Birtu Björnsdóttur, þykir hafa verið brotið gróflega á mér af hendi Listaháskólans og starfsfólks hans og hönnun mín nídd á óréttlátan hátt í fjölmiðlum, fer ég tafarlaust fram á formlega afsökunarbeiðni að hálfu skólans. Yðar einlæg Birta Björnsdóttir
Heyr Heyr fyrir Birtu að skrifa þetta fína bréf og mikið er ég sammála henni! Hvað er falleg flík?
Smekkur manna er auðvitað mjög misjafn, ég persónulega er mjög hrifin af Júniform merkinu og Birta fer alltaf sínar eigin leiðir í hönnun sinni sem er oft augljóslega copy-að af öðrum íslenskum hönnuðum, eða hún veitir þeim að minnsta kosti mikinn innblástur. Þið vitið sjálfar hvaða merki ég á þar við:)
Lesið þessar 3 síður og segjið mér síðan hvað ykkur finnst um þetta mál!!!
-S

cinderella

Hönnun
Cinderella chair eftir Anna Ter Haar,
Mmmm mér finnst þetta vera mjög fallegt, en einhvað efast ég samt um notagildi stólsins. Ég myndi allavega sitja mjög prúð ef ég vissi að ég sæti á glerfæti.
-S

DIY kreisí kúl loftljós!!

DIY
Ég rakst á svo brilliant DIY á einni af nýju uppáhalds síðunni minni!
Þar er því líst skref fyrir skref hvernig hægt er að búa til svona ljós, á nokkuð auðveldan hátt!
Tékk it –> HÉR

Þetta virkar frekar auðvelt í framkvæmd og mér finnst þetta ógeðslega töff!!
Ég er að fíla þessi að ofan, litinn og grófleikann, en það er að sjálfsögðu hægt að gera svona ljós í öllum
mögulegum litum og mörgum stærðum!
Hér eru t.d. nokkrar mjög flottar útfærslur á ljósinu…

Ég er búin að hugsa mikið um þetta og skoða þetta á fleiri síðum og þeir sem hafa gert þetta sem ég hef lesið um lýsa þessu sem frekar auðveldu ferli… Ég spáði soldið í hvernig bolta væri best að nota, því það verður að vera auðvelt að ná honum út úr kúlunni að verki loknu. Ég sá á einum stað að blaðra var notuð (neðsta myndin), en ég myndi ekki gera það því þær verða sjaldan alveg kringlóttar. Á síðunni sem ég benti á er notaður svona plast leikfangabolti eins og má eflaust fá í næstu dótabúð. Ég gæti trúað að það yrði soldið erfitt að ná öllu loftinu úr honum í lokin þannig að það megi auðveldlega toga hann út.
Þannig mér datt í hug að það væri eflaust sniðugast að nota sundbolta! Ég fór í Lyfju og fékk þar flotta stærð af sundbolta og býð nú bara eftir að ráðast í verkið:)
Ég ætla klárlega að gera svona ljós fyrir stofuna, er bara ennþá að reyna að finna tíma til þess og ég á einnig eftir að ákveða í hvaða lit það á að vera!
-R

sólsól skín á mig

*
Ný týpa af Ray Ban wayfarer… finnst þau frekar næs
Olivers people ásamt Balmain hönnuðu þessi í takmörkuðu upplagi, koma í búðir í mars-apríl.


En ég held það sé kominn tími til að splæsa þessum á sig finally. Er búin að eiga einhver wannabe frá HM í ár núna og þau eru rispuð í tætlur. Svo eru þessi frekar miiiiikil gæði!
Wayfare sólgleraugun urðu mjög vinsæl í kringum 1960, sérstaklega eftir að Audrey Hepburn sást með þau í Breakfast at Tiffany’s árið 1961, svo urðu þau aftur mjög vinsæl í kringum 1980 og aftur núna og ca síðustu 2 ár? Og þau eru sko ekkert að fara í bráð.


-S

NY Fashion Week

Ætli maður verði svo heppinn someday að komast á tískuviku í
New York, París, London… I wish

Annars fannst mér F/W 2010 collectionið frá Rebecca Taylor svaka flott.
Það var svo sem ekki mikið af nýjungum sem hafa ekki sést áður,
en mér fannst litirnir og litasamsetningarnar sérstaklega fallegt…


-R

nUde


Ég keypti mér nude varalit í gær, MAC Hue varð fyrir valinu
þökk sé öllum kommentunum sem komu á færsluna hennar Rakelar:)

En nude er greinilega liturinn. Eða ekki liturinn.

Celine

AF Vandevorst

Natalie Portman fyrir febrúar Elle Uk, mjög flott eins og alltaf.
Abbey Lee Kershaw fyrir febrúar Vouge Nippon

Svo ein af Vanilla scented í lokin. Hún er alltaf mjög smart

MCQUEEN


Myndirnar hér að ofan eru frá 1996-2009

Sorglegt þegar ungt fólk í blóma lífsins tekur líf sitt…


Alexander McQueen var einn mesti talent tískuheimsins í dag. Og nokkuð merkileg sagan hans.
Árið 1994 sótti hann um starf hjá Central Saint Martins -sem er einn virtasti hönnunarskóli í heiminum- sem leiðbeinandi að skera mynstur í efni (pattern cutter tutor.) En þar sem þeim leist svona vel á portfolio-ið hans hvöttu þau McQueen til að hefja nám við masterdeildina þeirra í tískuhönnun.
Hann lauk þeirri gráðu árið 1996 og var þá uppgötvaður af tískustílistanum Isabella Blow, en hún keypti hverja einustu flík úr útskriftarlínunni hans. Árið 1997 notaði Björk flík frá honum á cover-ið á Homogenic og eftir það lá leiðin aðeins uppávið. Sama ár var hann gerður að aðalhönnuði risamerkisins Givenchy og árið 2000 keypti Gucci 51% í McQueen merkinu. Hann var superstar hönnunarheimsins og stjörnurnar kepptust að eiga hönnun eftir hann. Sú sem tók það alla leið var þó LadyGaga sem notaði McQueen hönnun í flestum myndböndum sínum.



Við flestar höfum ekki komið nær hönnun hans heldur en með hauskúpuslæðunum sem urðu mjög áberandi fyrir ca.5 árum síðan, en þær voru replica af McQueen slæðunum og voru seldar bæði í Spúútnik og Sautján svo mig minnir.
Í dag er Zara að selja svona svipaðar hauskúpuslæður!

Eftir að McQueen framdi sjálfmorð hefur sala á slæðunum rokið uppúr öllu valdi enda eru þær það helsta sem “almúgurinn” hefur efni á eftir hann hehe:)
En þær verða mjög verðmætar einn daginn.
Ég ætla mér ekki að splæsa í svona fínheit, enda er ég enn að syrgja að ég týndi minni fake haha.
Veit ekki hvernig ég væri ef ég týndi einni svona ekta:)
2009- Kjóll eftir McQueen, valinn einn af “100 bestu kjólum aldarinnar” af InStyle.

Það hefur ekki verið staðfest af hverju hann framdi sjálfsmorð
en mamma hans lést aðeins nokkrum dögum áður og þau voru víst mjög náin.
Þann 3.feb postaði hann á Twitter síðuna sína að mamma hans hefði látist.
“RIP mumxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx.”
Nokkrum dögum eftir það postaði hann á Twitter síðuna sína;


sunday evening, been a f**king awful week but my friends have been great but now i have to some how pull myself together (sic).”


Talið er að lát móður hans hafi verið helsta ástæða þess að hann framdi sjálfsmorð, en vinur hans hafði þetta að segja eftir að hann fékk þær fréttir að McQueen hefði framið sjálfsmorð;

“He lived and breathed to make his mother proud of him. Everything he did was done to please her, like a ‘Look mommy, look what I did.’ He was very, very attached to her. And when she died last week, I think he felt, ‘what’s the use of anything anymore.‘”

Þar hafiði það…

-S

s p e s

Hönnun
Endalaust get ég skemmt mér yfir furðulegri hönnun:)

Rakel; Hvað er þetta stóra svarta
Svana; Þetta er nýja ljósið mitt!
Rakel; Ljós? riight. Hefuru tekið eftir að það kemur ekkert ljós frá því?
Svana; Þú þarft að gera holur í það svo ljósið komist í gegn. Prófaðu bara!


Rakel;
En þetta gefur ekkert frá sér nóg ljós!
Svana; Jú haltu bara áfram að búa til göt þangað til það kemur nóg ljós!


Rakel;
úbs.
Alltaf tilbúin að stökkva í garðvinnuna

Fyrir þessa safnóðu. Finnst þessi samt lúmskt grúví

Fyrir þá sem vilja nýta plássið

Svo ein handa kallinum til að róa taugarnar yfir fótboltaleiknum.

Ég veit ekki alveg með þetta alltsaman..

-S

P.S. Gerist það oft þegar þið farið inn á síðuna okkar að þið sjáið ekki
myndir sem við höfum látið inn, að þær birtast ekki??

mmmmmm

Hugmyndir
ME like!
ég fæ nú bara vatn í munninn yfir þessari mynd. Aðeins of pörfekt. Væri til í að búa þarna!
Simple og flott
Bleik og fín
Svört hurð er aðeins meira normal, en þó mjög smart.
Ég gæti líka hugsað mér svarta hurð í stofuna mína!
Svo verður útidyrahurðin mín líka máluð í fínum lit!:) (Heppin ég að kæró les ekki bloggið haha)
Sniðugt að mála hurð í eldhúsinu eða part af vegg með krítarmálingu.
Svo missti þessi sig smá í gleðinni.

-S