fbpx

fallegt.

Skart


Hárskraut-eyrnalokkur
pretty
Bolur Topshop



axlaskart
Hárbönd eftir Önnu Soffíu, myndir Saga Sig
Ef ég væri að gifta mig í sumar væri ég til í eitt svona hvítt. (Inga mín!)
Endalaust fallegt hálsmen sem Birta er með. Tók þessa mynd af Júniform facebook síðunni.

-S

taktu eftir henni.



Vera Þórðardóttir er ungur fatahönnunarnemi við Instituto Marangoni í London, en sá skóli er mjög virtur í fatahönnunarbransanum.
Nýlega tók Vera þátt í keppni á vegum FAD (fashion awareness direct) þar sem nemendur úr öllum fatahönnunarskólum í Bretlandi gátu tekið þátt. Væri það nú ekki frásögu færandi nema það að hún lenti í 4. sæti af 100 þáttakendum!!!!! Og var tískusýningin haldin á London Fashion week 2010.
*Klapp* *Klapp* *Klapp*
Þáttakendur áttu að vinna með konseptið minningar og hanna útfrá því 2 outfitt í “futuristic” stíl. (afsakið enskuslettur, les of mikið af tímaritum haha)
Dómnefndin var ekki af verri endanum, en í henni sat t.d. tísku innkaupastjóri Harrods hún Elizabeth Mcluskie ásamt Vauxhall Fashion director John Wolford.
Verðlaunin voru líka hrikalega flott, en það var keppst um starfsnám frá William Tempest, Jonathan Saunders, Paul Smith og Vivienne Westwood ásamt peningaverðlaunum.
Vera vann starfsnámið hjá William Tempest en hann hefur fengið umfjöllun í flestum stærstu tískutímaritum heims svo sem; Vouge UK, Vouge Brazil, Harper’s Bazaar, Elle, In Style og svo mætti lengi telja. Ásamt því að Victoria Becham hefur klæðst hönnun eftir hann.
Hér sjást vinningskjólarnir hennar.
Hannað út frá konseptinu Minningar.

Þessum stal ég af netsíðunni hennar.
Mjög smart og ég er sérstaklega hrifin af jakkanum í efri línunni,

P.s. Vera, við þekkjumst ekkert en GOOD JOB!!

Afhverju er þessu ekki splæst á forsíðu Morgunblaðsins??
Það ber að fagna þegar íslendingar frá verðskuldaða athygli á erlendri grundu.

-S

Fyrir & eftir

DIYHeimili
Þetta hefur mér aldrei dottið í hug… Það er nú hægt að spreyja og mála allan andskotann.
Ég á einmitt nokkra liti inní skáp, spurning um að fara að leika sér smá:)


Næstu helgi er ég búin að lofa sjálfri mér að fara í mission að leita mér að skenk undir sjónvarpið.
Ég skal standa við það!
Og mun auðvitað deila myndum með ykkur (þegar ég er búin híhí)

-S

Og þá er það svart


Franska Vogue notast við svarta fyrirsætu
á forsíðu í mars
tímariti sínu
í fyrsta skipti síðan árið 2002.

18 ára fyrisætan Rose Cordero

Í október á síðasta ári var franska Vouge með mjög umdeildan myndaþátt þar sem
fyrirsætan Lara Stone var máluð svört frá toppi til táar.

Your request is being prcessed…

Lara Stone í myndaþætti í Vouge í fyrra.

Hvað ætli valdi því að svartar fyrirsætur séu alltaf í minnihluta á tískusýningum
og coverum á tískutímaritum!?
Mín uppáhaldsfyrisæta þessa stundina er Chanel Iman, mér finnst hún alveg æðisleg!
xxx
-S

UMA

Heimili
Hvernig vissi ég ekki af þessari síðu!

Uma.is



Familjen veggfóður eftir Lisu Bengtsson – fabulous!


Eitt frægasta plakat í heimi – too cool for school!

Sweet rúmföt!


Hreindýr úr pappa – tjah…

Skulls veggfóður – awesome!

..og fullt af öðru fallegu:)

-R

Endurnýting

DIY
*

Skemmtileg útfærsla á stofuskáp, sett saman úr allskyns drasli:)
Gaman hvað sumir sjá möguleika í hlutum sem aðrir henda frá sér.

-S

Sunnudagur til sælu

Hugmyndir


Linda said…
Af miklum áhuga fyrir blogginu þínu og hugmyndunum sem þú hefur..
hvaða hugmyndir hefur þú á gardínum fyrir eldhúsglugga.. frekar lítill gluggi og lítið eldhús en held samt þörf fyrir gardínu..ekki miklum, ekki þykkum, bara eiginlega meira svona skrauti..
og skartgripageymslu.. ég er sjúk í að hafa skartgripina mína sýnilega en samt fína og á sínum stað.. hvaða hugmynd hefurðu fyrir það?
Ég er búin að hugsa mikið um þetta og hef því miður ekki of margar hugmyndir… kannski þar sem mínir gluggar skarta ekki fallegustu gardínunum í bænum haha. En ég hef s.s. hingað til ekki mikið hugsað um gardínur:)

Þessi hugmynd finnst mér æðisleg, að nota gamlar slide ljósmyndir til að hylja gluggann.
Það kemur þá líka skemmtileg birta frá glugganum!
Hægt er að nálgast svona myndir stundum í Kolaportinu, Góða Hirðinum,
eða í geymslunni hjá ömmu sinni og afa:)
Fjölskyldan mín liggur á nokkur hundruðum svona slide myndum
og mér finnst tilvalið að nýta þær á einhvern hátt!


***

Until dawn eftir Tord Boontje, einn af mínum uppáhaldshönnuðum.
Hægt er að nota þær sem gardínur eða skilrúm í herbergi.
*GORDJÖSS*
Ein af mínum bestu vinkonum keypti sér svona hengi, er um meter á lengd en hún klippti það til svo það passaði í eldhúsglugann hjá sér og kom rosalega vel út!
Þetta var selt á sínum tíma í Saltfélaginu, en það er búið að minnka ansi mikið við sig og flutt hjá Pennanum Ármúla, þori ekki að fara með það hvort það sé enn í sölu hjá þeim. Annars dettur mér IÐA í hug.
En það væri algjör synd ef hönnun eftir Tord Boontje væri ekki til sölu á Íslandi!




Svo er auðvitað hægt að gera HOMEMADE útgáfu af henginu:):)
Þetta hengi í kannski tveimur layer-um gæti komið vel út! Og kostar ingen ting.


***
Svo voru þessar gardínur að koma í HM HOME, rosa fallegar!
Kosta um 30 evrur stykki, 2,5 metrar x meter. Og vel hægt að klippa þær til í minni glugga.

Hér eru þær notaðar sem sturtuhengi.
Áhugavert að vita hvernig efni er nú í þessum gardínum…


-S


p.s. skartgripageymslubloggið er á leiðinn
i

Acne haust 2010


Er Acne selt heima á Íslandi ?
Fór í Acne Amsterdam í vikunni og sá einn fallegasta kjól sem ég hef augum litið…
Er einmitt í miklum kjólapælingum þessa dagana fyrir brúðkaup í sumar (ekki mitt samt)
Spurning að skella sér á hann þegar nær dregur…

-S

Charlotte Ronson s/s 2010

Jebb systir Samantha Ronson (fyrrv.LiLo) er s.s. fatahönnuður
og tókst líka svona vel til fyrir vor/sumarlínuna 2010
Þessar leggingsbuxur eiga eftir að vera áberandi í sumar!
Ekki endilega gegnsæjar eins og þessar, en síddin, s.s. hjólaleggings:)
Ég þarf s.s. að byrja að raka lappirnar ohhhh

Svo fær þessi að fylgja því mér finnst hún smart:)


Myndir þú nota hjólaleggings?

-S