fbpx

SÓLVEIG ANDREA GERIR STÓRKOSTLEGAR BREYTINGAR Á ÍBÚÐ Í SJÁLANDI

HeimiliÍslensk heimili

Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með Sólveigu Andreu innanhússarkitekt á samfélagsmiðlum en þar hefur hún verið að sýna frá allskyns verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur. Myndirnar sem við ætlum að skoða í dag eru af gullfallegri íbúð í Sjálandi, Garðabæ með geggjuðu útsýni, þar sem allt var rifið út og hannað upp á nýtt. Útkoman er svo vel heppnuð en ég leyfi nokkrum myndum af íbúðinni fyrir breytingar að fylgja með hér neðst í færslunni svo þið sjáið muninn.

Stíllinn er léttur og fágaður og útsýnið fær að njóta sín, eldhúsið stelur alveg athyglinni og tækjaskápurinn er algjört æði með fallegri klæðningu sem tengist vel við viðarklæðningu sem sjá má víðar á heimilinu.

Kíkjum í heimsókn –

“Eldhús – bað og fataskápar eru frá Byko. Hurðar, rimlaveggir, bókaskápur, náttborð og skápur í hjónaherbergi er sérsmíðað frá Fagus og hannað af Sólveigu Andreu.”

 

“Kollur undir gangborði er frá bestheima.is – sem er íslensk hönnun og smíði. Allar gardínur eru frá Álnabæ.”

Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is

“Það var allt rifið út og sett nýtt, hiti settur í gólf og allir ofnar teknir. Sett nýtt rafmagn og kerfi sem heitir Free@home frá Rafport. Öll ljós eru frá Lumex – nema borðstofuljós það er frá Magnolia.”

“Borðstofuborð og stólar eru frá Epal.”

Sófi í stofunni er frá Húsgagnahöllinni og stólar. Sófaborð, rúmgafl, lampar, gangborð, mottur og fylgihlutir eru frá Magnolia

“Tæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Byko og sturtugler frá Íspan. Borðplata frá S. Helgasyni og borðvaskar á baðherbergjum.”

Myndir : Vignir hjá Fasteignaljósmyndun

Gaman að sjá myndirnar af íbúðinni fyrir breytingar og sjá hvaða töfra innanhússarkitektar geta gert fyrir heimili sem þó er alls ekkert ólekkert fyrir en í dag alveg æðislega flott.

Vonandi höfðuð þið gaman af þessum myndum, ég mæli með að fylgjast með Sólveigu Andreu innanhússarkitekt á Instagram @solveig.innanhussarkitekt

Takk fyrir lesturinn og takk fyrir að deila með okkur þessum myndum Sólveig Andrea ♡

Þangað til næst – og þið getið alltaf fylgst með mér á Instagram @svana.svartahvitu

FALLEGT ELDHÚS MEÐ BLÁUM SJÖUM OG FLÍSAKLÆDDUM MARMARAVEGG

Heimili

Vissuð þið að Sjöan er einn mest seldi stóll í öllum heiminum? Hann þykir afar eftirsóttur sérstaklega þegar kemur að eldhússtólum og hér má sjá hann í djúpum bláum lit sem hressir eldhúsið við á móti klassískum marmara og ljósgrárri innréttingu. Það er dálítið sniðug lausn að klæða vegginn á milli efri og neðri eldhússkápa með marmaraflísum sem er án efa ódýrara fyrir þá sem hrífast af þessu útliti án þess að geta endilega leyft sér ekta marmara á heilan vegg.

Stofan er skreytt fallegum húsgögnum, Bollo stóllinn er alltaf dálítið skemmtilegur og Arco lampi Castiglioni trónir yfir stofunni en það þarf ekki ljósakrónu þegar þessi lampi er annars vegar.

Kíkjum í heimsókn –

Borðstofan er mjög smart, með stærðarinnar glerborði og ljósbleik-brúnum gardínum sem gefa smá hlýju.

Skemmtilegt svefnherbergi með lítilli vinnuaðstöðu, en ég mæli svo sannarlega ekki með því að raða svona uppá rúmgaflinn því það er slysahætta í jarðskjálfta.

Myndir // Alvhem

Fallega heimili – ég vona að þið hafið átt góða helgi. Ég er að koma mér í gírinn fyrir komandi viku í páskafríi með börnin og reyna að sinna smá vinnu meðfram. Skemmtilegt páskaskraut er ofarlega í huga og kem ég án efa til með að deila einhverju með ykkur.

Þangað til næst, Svana

FALLEGT ÍSLENSKT HEIMILI : BJART Í URRIÐAHOLTI

Íslensk heimili

Hér býr góð vinkona mín ásamt fjölskyldu sinni í Urriðaholti í Garðabæ og var íbúðin að koma á sölu fyrir áhugasama, það er hún Hulda Jónsdóttir arkitekt sem er smekkkonan á þessu heimili. Hingað flutti fjölskyldan eftir margra ára dvöl erlendis í námi og er þeirra fyrsta stopp á Íslandi og er nú kominn tími á að stækka við sig. Íbúðin er alveg æðisleg, hér er stórkostlegt útsýni og birtan flæðir inn um stærðarinnar stofuglugga. Ég mæli svo sannarlega með að kíkja á þessa eign ef þú ert í fasteignarhugleiðingum.

Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is

Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is

Smelltu hér til að sjá meira –

Þið getið fylgst með Huldu á Instagram @the_icelandic_architect

STJÖRNUSTÍLISTINN LOTTA AGATON SELUR HEIMILIÐ

Heimili

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með stíl sænska stjörnustílistans Lottu Agaton þróast í gegnum árin en hún hefur verið óhrædd við að feta nýjar slóðir þegar kemur að heimilisstíl. Hún er yfirleitt skrefi á undan þegar kemur að tískustraumum og má þar nefna að hún málaði allt heimilið sitt fyrir 5 árum síðan í dökkgráum lit, veggi og loft og kom þar af stað vinsælli tískubylgju sem enn sér ekki fyrir endann á – þar sem loft og veggir eru málaðir í dökku – sjá myndir hér. Hún seldi það heimili fyrir um fjórum árum síðan og fór þá aftur yfir í allt ljóst en þá voru flestir svíar nýbúnir að mála yfir hvítu veggina sína og eflaust mörgum sem brá nokkuð að þessi vinsæli stílisti og trendsetter hafi tekið svona mikla u-beygju varðandi litaval. Heimilið sem við erum að skoða núna er staðsett á Kungsholmen, vinsælu íbúðarhverfi í Stokkhólmi og seldist íbúðin á augabragði.

Stíllinn er notalegur og fallegir ljósir jarðlitir og náttúruleg efni eru einkennandi. Stærðarinnar listaverk setja sinn svip á heimilið ásamt vel valinni hönnun og úthugsuðum smáatriðum sem hafa verið hennar einkennismerki – hér hefur hverjum einasta hlut verið vandlega raðað.

Myndir // Per Jansson via My Scandinavian home 

Hún Lotta er í miklu uppáhaldi hjá mér eins og ég hef svo oft komið inná áður, ég hitti hana fyrir um tveimur árum síðan í afmælisboði String í Stokkhólmi sem mér var boðið í af Epal, en Lotta sér um alla stíliseringu fyrir String. Ég stóðst ekki mátið og viðurkenni að ég beið eftir henni fyrir utan baðherbergið til þess eins að geta sagt henni hvað ég væri roooosa mikill aðdáandi hennar haha. Þeir sem þekkja mig sjá þetta líklega fyrir sér – en ég á frekar erfitt með að segja ekki allt sem ég hugsa! Hún var sem betur fer jafn æðisleg og ég sá fyrir mér – en ein verstu vonbrigðin eru líklega að vera aðdáandi einhvers sem kemur svo í ljós að sé ekki næs (eins og mögulega einn súper frægur hönnuður sem var hér á landi einu sinni haha… ).

Smá útúrdúr, en það er gaman að skoða falleg heimili sérstaklega þegar fólkið sem býr þar er brosmilt og skemmtilegt ♡

FALLEGASTA LJÓSIÐ KOMIÐ HEIM

HeimiliHönnunKlassíkPersónulegt

Verner Panton er einn af mínum uppáhalds hönnuðum og mig hafði dreymt um að eignast klassíska skeljaljósið hans í mjög mörg en það er eitt af hans meistaraverkum og var hannað árið 1964. Ljósið ber skemmtilega nafnið Fun en það mætti einnig segja að sé frekar lýsandi orð um hönnun Verner Panton, það er nefnilega mikil gleði sem einkenndi öll hans verk, bæði í litum og formum. Flest ykkar þekkja Panthella lampana sem eru einnig á meðal hans þekktustu verka en Fun ljósin tróna á toppnum að mínu mati og eru framleidd af danska hönnunarframleiðandanum Verpan. Algjörlega stórkostlega falleg hönnun sem ég hreinlega fæ ekki nóg af.

Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að kaupa ljósið í miðstærð Fun 1dm en þess má geta að ljósið kemur í ótrúlega mörgum útgáfum og stærðum; loftljós, náttljós, gólflampar og borðlampar. Fun ljósin þarf að láta sérpanta hjá Epal og það eru engin sýningareintök en ég lofa ykkur því að þau eru jafn falleg og þið haldið. Þessi stærð er fullkomin þykir mér, nógu ‘grand’ án þess að gleypa stofuna mína sem er ekkert mjög stór.

Ljósið kom aldeilis vandlega innpakkað og hver og ein skel var pökkuð inn í silkipappír og með ljósinu fylgdu hvítir hanskar sem ég þurfti að vera í á meðan ég raðaði ljósinu saman – mikið stuð! Skeljarnar eru náttúrulegar og því engin þeirra eins sem gerir hvert ljós einstakt. Rósettan frá Sérefni rammar ljósið síðan svona fallega inn, finnst hún alveg 100% setja punktinn yfir i-ið.

Núna er borðlampi í Fun línunni á óskalistanum mínum en falleg ljós eru eitthvað sem ég á mjög erfitt með að standast. Verpan framleiðir mikið af klassíkum eftir Verner Panton sem var án efa einn af risunum í danskri hönnunarsögu þrátt fyrir að hafa oft farið óhefðbundnari leiðir en kollegar hans. Ég mæli svo sannarlega með því að skoða úrvalið hjá Verpan af ljósunum ef þú ert í leit að einstakri hönnun.

Ég er alveg bálskotin, hvernig lýst ykkur á valið?

VORBOÐINN LJÚFI : MÚMÍN VORNÝJUNGAR

Fyrir heimiliðSamstarf

Þann 15. mars bætast við æðislegar nýjungar í Moomin vörulínuna, einn af vorboðunum ljúfu að mínu mati. Sögurnar um Múmínálfana eru svo heillandi að bæði fullorðnir og börn hrífast með, þetta er eitt uppáhalds barnaefnið í sjónvarpinu að mínu mati og skemmtilegt að geta sagt sögur á bakvið myndskreytingarnar á bollunum þegar morgunkaffið er drukkið. Að þessu sinni eru það þær Múmínmamma og Fillífjónkan sem skreyta nýju vörurnar og koma í sætum litum sem gaman verður að bæta við safnið.

Múmínmamma er máttarstólpi Múmíndals og hjarta Múmínhússins, blíð og snjöll móðurímynd sem lætur ekkert á sig fá. Fjölskyldan nýtur ekki bara góðs af samkennd hennar heldur er hún tilbúin að hugsa vel um alla þá sem heimsækja Múmínhúsið.

Múmínmamma kann svo sannarlega að njóta lífsins. Hún er með vinnukonu á heimilinu af því að Fillífjónkan telur að fjölskyldan þurfi aðstoð við að ná reiðu á óskipulagða heimilið.

Frú Fillífjónka er þriggja barna móðir og er hún afar snyrtileg og skipulögð manneskja. Hún er heltekin af heimilisþrifum og er uppá sitt besta þegar henni gefst færi á að skipuleggja almennilega vorhreingerningu.

Dag einn mætir geðlæknir í Múmíndal og læknar frú Fillífjónku af hreingerningar-áráttunni. Þegar heimili hennar fer smám saman að hrörna ákveður Múmínmamma á sinn einstaka hátt að aðstoða Fillífjónkuna við að fá aftur ástríðu fyrir þrifum.

// Ég er í samstarfi við umboðsaðila Moomin á Íslandi, Ásbjörn Ólafsson – en hef safnað vel völdum Múmínbollum löngu áður en það samstarf kom til ♡

Vörurnar koma í sölu þann 15. mars og verða svo partur af varanlegri vörulínu Moomin.

Eigið ljúfan föstudag kæru lesendur.

HÖNNUNARNÝJUNGAR : MÍNIMALÍSKT STELL FRÁ ROYAL COPENHAGEN

Hönnun

Royal Copenhagen kynnti á dögunum nýtt stell í mínimalískum stíl sem ber nafnið Blueline. Nafnið vísar í bláa línu sem handmáluð er á hvert eintak en auk þess má sjá Royal Copenhagen stimpil sem er einkennandi fyrir þetta stell.

Það hefur lengi þótt vinsælt að blanda saman Royal Copenhagen stelli og á Blueline því án efa eftir að falla vel í kramið hjá mörgum hvort sem þau kjósa að blanda saman eða nota eitt og sér.

Hvernig lýst ykkur á þessa nýjung? Ég er sjálf hrifin af því að blanda saman stellinu og kem líklega til með að næla mér í kaffibolla í safnið.

SVEITARÓMANTÍK HJÁ BLOGGARA

Heimili

Sænski bloggarinn Johanna Bradford hefur getið sér gott orð fyrir einstakan smekk sinn en hún deilir hugleiðingum sínum á bloggi sem finna má á Elle.se. Heimilið hennar er sjarmerandi í smá sveita rómantískum stíl en hún flutti nýlega frá stórborginni Gautaborg til heimabæjar síns Borås og hefur komið sér og fjölskyldu þar vel fyrir. Dálæti hennar á breskum stíl fær að njóta sín, mynstraður textíll og veggfóður sem setur sinn svip á heimilið. Kíkjum í heimsókn –

Sjáðu fleiri myndir og lestu viðtalið hjá Elle Decoration. 

Myndir // Elle.se 

Eigið góðan dag!

UPPÁHALDS Á INSTAGRAM // DANICA CHLOE

Heimili

Innblástur dagsins frá Instagram er að þessu sinni frá Danica Chloe smekkdömu sem býr í Kaupmannahöfn. Litríkt heimili hennar fangaði augað mitt og veitir mikinn innblástur, ég elska svona persónuleg og litrík heimili og finnst þau gefa svo mikla gleði. Ef þú ert hrifin af pastellitum – þá sérstaklega bleikum og lillabláum – og skandinavískum heimilisstíl þá mæli ég með að fylgja @danicachloedk.

Eigið góðan dag!

Gullfallega heimili hjá Danica og mig dreymir um nokkra hluti sem þarna má finna, myndaveggurinn er sérstaklega líflegur og þar má einnig nefna flotta sjónvarpið Frame sem er eins og falleg mynd í ramma þegar það er slökkt á því! Skemmtileg hönnun sem er á lottó óskalistanum mínum;)

ÞAÐ VINSÆLASTA Í DAG – BANGSASTÓLAR

Hönnun

Mikið hlýtur nú að vera notalegt að hjúfra sig í þessum mjúku bangsastólum með góða bók. ‘Sheepskin’ hægindarstólar – eða stólar sem klæddir eru með snöggklipptri sauðagæru þykja afar eftirsóttir í dag og bjóða öll helstu húsgagnahönnunarmerkin upp á einn góðan bangsastól eins og ég kýs að kalla þá. Dásamlega fallegir allir sem einn!

Bollo frá Fogia

The Tired man frá By Lassen

 

Finn Juhl Pelican stóll

 Little Big Chair frá Norr11

Little Petra frá & Tradition

Knitting hægindarstóll frá Menu

Elephant chair frá Norr11

Finn Juhl Poet sófi – einn mjúkur og klassískur sófi fær að vera með í valinu.

Myndir : Frá framleiðendum

 Hver er þinn uppáhalds? Ég held mikið uppá Little Petra og Knitting Lounge chair er hrikalega flottur frá Menu. Þó á ég erfitt með að gera upp á milli þeirra allra, hver þeirra er með sinn sjarma!