hönnun, heimili og hugmyndir

12:10

Ég hef stundum verið spurð útí screensaver-inn á tölvunni minni, en eftir að hafa rekist á ótalmargar myndir úr innlitum eins og þessar hér að ofan þar sem þessi fína klukka birtist á tölvuskjánum þá ákvað ég að fara í smá google-leit.

Þessi klukka heitir Fliqlo og hægt er að ná í (ókeypis) Hér. 

:)

ELLE DECORATION-MARS

Mars tölublað Elle Decoration kom út í gær og aukamyndir sem ekki náðu í blaðið hafa nú þegar verið birtar á heimasíðu þeirra. Þessar myndir eru frá fallegu heimili hönnuðarins Michaël Verheyden í Belgíu. Þær lofa góðu og ég mun án efa fjárfesta í blaðinu þegar það dettur í verslanir hér heima.

Erum við að tala um að þetta sé klósettið?

Myndir: Wichmann + Bendtsen

Marmari, kopar, viður, leður og steypt gólf=bjútífúl.

KVENLEGUR STÍLL

Hönnuðurinn og teiknarinn Sarah Illenberger býr í þessari íbúð í Berlín.

Þetta er frekar gamalt innlit en það breytir því þó ekki að það er dásamlega fallegt, kvenlegur stíll er allsráðandi á þessu heimili, fallegir litir og einstakir hlutir. Mikið eru glerkúplarnir og myndaveggurinn æðislegur. myndir via Freunde von freunde.

Ég hinsvegar var að skila af mér H&H blaði í prentun í dag, því hefur lítið verið að ske hér undanfarna 2 daga.

Mig langar reyndar að koma einu á framfæri því að undanfarnar vikur/mánuði hafa mér borist gífurlega margir tölvupóstar, sem ég hef svo innilega gaman að, en það getur komið fyrir að það tefjist að svara þeim. Flestir þeirra eru varðandi innanhúss-ráð, hvar hitt og þetta fæst ásamt spurningum frá a-ö varðandi hönnun og heimili. Stelpurnar í vinnunni nefna einmitt reglulega “hvað það er gott að fletta upp í hausnum á mér…” s.s. þið ykkar sem enn eruð að bíða eftir svari, bíðið róleg, ég er að reyna að ná utan um þetta:)

-Svana

CHAIR ONE

Chair one var hannaður af Konstantin Grcic árið 2003 og er hann framleiddur á Ítalíu af Magis. Stóllinn er staflanlegur og steyptur úr áli sem bíður því upp á mikla notkunarmöguleika, innandyra sem utan.

Einn svona fylgdi mér heim af útsölunni í Epal.

:)

[vfb id='3']

Tískuráðgjöf frá bloggurum Trendnet

Að tilefni Tískudaga í Smáralind býður Trendnet uppá persónulega tískuráðgjöf þessa helgina.

Leggðu fram þína spurningu/ar hér fyrir neðan.

Öllum verður svarað.

Nafn

Netfang

Hvern viltu spyrja

Spurning