fbpx

NINE KIDS ER ÞRIGGJA ÁRA ♡ GLÆSILEGIR AFMÆLISAFSLÆTTIR 1. NÓV

Barnavöruverslunin Nine Kids fagnar 3ja ára afmæli sínu, mánudaginn þann 1. nóvember með glæsilegum afsláttum í verslun og í vefversluninni! Ég mæli svo sannarlega með því að kynna ykkur vörurnar sem verða á afslætti því hægt verður að gera ótrúlega góð kaup hjá þeim á t.d. ferðakerrum, bílstólum, matarstólum ásamt barnafatnaði og leikföngum. Tilboðsvörurnar verða sumar þó í takmörkuðu upplagi og því gildir fyrstur kemur – fyrstur fær. Nine Kids er ein af mínum uppáhalds verslunum og eiga bæði börnin mín mjög fallegar flíkur og leikföng þaðan sem ég hef verslað þar og ásamt því er bílstóllinn og kerran okkar – sem ég elska líka þaðan.

Það sem helst ber að nefna á afmælisafslættinum eru æðislegu viðarleikföngin frá Little Dutch sem er á 20% afslætti, allur fatnaður á 20% afslætti, Nomi barnastólar! (takmarkað magn) á 20% afslætti, Cybex ferðakerra á 20% afslætti og bílstóll Cybex Solution á 40% afslætti! Margt sem ég tel hér upp fer aldrei á afslætti svo ég mæli með því að kíkja við hjá Nine Kids þann 1. nóvember! Opið verður í Nine Kids frá klukkan 11-20 og tilboðin gilda til miðnættis!

Til hamingju með 3ja ára afmælið! Hipp Hipp Húrraaa

Færslan er unnin í samstarfi við Nine Kids

Ullarföt, leikföng, jólagjafir! Það er að minnsta kosti á mínum lista ♡ Viðarleikföngin frá Little Dutch eru í miklu uppáhaldi hér á bæ og get ég vel mælt með þeim. Dóttir mín hefur fengið í afmælis og jólagjafir og leikur sér mikið með þau.

Þetta og svo miklu miklu meira verður á frábærum afmælisafslætti Nine Kids, mánudaginn 1. nóvember. Smelltu hér til að skoða úrvalið í vefverslun Nine Kids.

Fylgstu endilega með á Instagram @svana.svartahvitu

EINAR & ARON Í MIKADO SELJA FALLEGA HEIMILIÐ SITT

Skrifa Innlegg