fbpx

P.S…

Blog

Ef þið hafið aldrei heyrt um hana Ericu hjá P.S. I made this þá hafið þið misst af miklu. Erica er ótrúlega sniðug og hugmyndarík og fönrar fram dýrindis hluti með hjálp límbyssunnar sinnar – úff ég verð að eignast þannig:)

Hér er smá af mínu uppáhalds;)

og það nýjasta hjá henni vakti mikla lukku hjá mér:D

Því miður þá eru þessar vörur reyndar ekki til hjá Maybelline á Íslandi alla vega í bili;)

HÉR getið þið skoðað meira frá Ericu – en varúð gefið ykkur góða tíma til að fara í gegnum archive-ið hennar:)

EH

Hverja næst…

Blog

hmmm… einhverjir af þessum verða líklega mín næstu Jeffrey Campbell kaup, ég hef ofnotað Litu skónna mína núna í rúmlega ár svo ég verð að fara að eignast nýja;) – held að þessir neðstu séu í fyrsta sæti núna alla vega:)

EH

Helgin

Blog

Var frábær! Vinnudagur og uppskeruhátíð með vinnunni sem endaði svo í 9 rétta smakkmatseðli á Grillmarkaðnum ég gafst upp á rétti nr 7:)

en mikið var nú gaman! Gleymdi samt alveg að taka dress mynd… var í basic svörtum kjól með blómahálsmen frá Ginu og í röndóttum sokkabuxum og að sjálfsögðu fallegu Lita JC skónnum mínum:)

Mikil gleði***

EH

Annað Dress

Blog

Kíktum í mat á Selfoss og fengum smá glaðning í skóinn okkar:)

Litla músin var glöð að sjá kunnugleg andlit þegar við komum heim:)

Peysa: Forever 21
Stuttbuxur, pleather: Forever 21
Sokkabuxur: Oroblu All Colors
Kragi: Oroblu
Bolur: hvítur basic, must have að eiga einn svona;)

Vinnudagur á morgun, uppskeruhátíð og Grillmarkaðurinn vúhúú! Þarf að fara að ákveða í hverju ég á að vera, verð 100% samt með einn af nýju fallegu varalitunum mínum;)

EH

Óskalistinn

Blog

Silkikjóll frá Won Hundred

Dolce & Gabbana jakkinn sem Kate Bosworth var í í Harper's Bazaar

Beyonce var í D&G jakkanum þegar hún tilkynnti að hún ætti von á barni á VMA hátíðinni 2011

…bara ef ég myndi nú vinna í lottói! – Won Hundred kjóllinn má samt alveg rata í afmælispakka, kannski bara frá sjálfri mér;)

EH

Snyrtiborð

Blog

Mig hefur lengi dreymt um að eiga snyrtiborð og ég er loksins búin að finna það fullkomna – ég er búin að kaupa fylgihlutina fyrir það – skipulagshirslur í skúffuna – svo ætla ég að nota fallegan gamlan gylltan spegil við það. Ohh hvað ég hlakka til. Svo verður þessi mynd prentuð út og mun vera í ramma á borðinu:)

Ég er mikill aðdáandi Great Lash maskarans og er alltaf með amk einn í snyrtibuddunni!

EH

H&M og Versace

Blog

Ég er búin að vera spennt að sjá restina af línunni frá Versace fyrir H&M og nú er biðin á enda! Hér eru mínar uppáhalds flíkur:

Fjólublái kjóllinn og sá efsti eru alveg sérstaklega fallegir en þetta hálsmen verð ég að eignast! – Abbey Lee er einmitt með það á efstu myndinni;)

17. nóvember er dagurinn til að vera í H&M

Getið skoðað meira HÉR – hvað finnst ykkur?

EH

Pakkar

Blog

Geta verið svo mismunandi. Sótti 2 í gær, annar var fallega pakkaður inn og með handskrifuðum þakkarmiða sem mér fannst virkilega fallegt, hinn var með mjög undarlegum skilaboðum sem fengu mig til að hlæja!

Fallegi pakkinn með handskrifaða miðanum.


Þessi fannst mér mjög fyndinn!

nú er nýtt markmið að skrifa handskrifaðan þakkarmiða til allra viðskiptavina minna:D

EH