Jæja, þá er ég búin að draga úr gjafaleiknum í samstarfi við SnoozTime heilsukoddana. Ég þurfti að telja þátttakanda nr. 117 svona átta sinnum, ég var sífellt að missa einbeitinguna og scrolla og langt og ég veit ekki hvað. Mjög gaman, haha.
Allavega, það voru tvær stúlkur/konur að nafni Sigrún sem unnu sér inn heilsukoddana. Ég þakka öllum öðrum kærlega fyrir þátttökuna.
Sigrún Ósk Jónsdóttir fær kóralbleikan SnoozTime heilsukodda og Sigrún Guðjónsdóttir fær þann rauða. Endilega hafið samband við mig á karenlind@trendnet.is.
Ég bendi annars áhugasömum á facebook síðu SnoozTime Heilsukoddana.
Kærar kveðjur,
Skrifa Innlegg