Ég fór aðeins í Kringluna í gær… ansi þreytt og lúin, enda var ég mætt á lesstofuna kl. 8 í morgun og mér tókst að skrifa til 16.
Ég kom við í Adidas og fékk leyfi til að taka nokkrar myndir af afsláttarvörunum. Sæll hvað fötin eru ótrúlega flott, litrík, skemmtileg, með flotta detaila og úr frábæru efni… það hljómar eins og ég hafi fengið greidd laun fyrir þessi hól – ó nó.. ég fékk ekki krónu, langar bara rosalega að sýna ykkur þessi litríku og skemmtileg æfingaföt. Þarna voru meðal annars flíkur sem ég og Ása höfum báðar bloggað um: sjá hér og hér.
Það var flest allt á útsölu – og á góðu verði.. það kom mér á óvart hve ódýr línan frá Stellu McCartney var. Það var alveg slatti eftir.. mig langar ekkert smá mikið í einhverjar fallegar flíkur frá Stellu línunni! Afgreiðslustúlkan sagði mér að það kæmi ný lína frá Stellu McCartney í febrúar.. og þau eiga víst von á einhverjum ótrúlega flottum “blómamynsturslitabombuhlaupabuxum” frá henni. Screaming for Katie, það er bara þannig.
Kóral+fjólubláa litablandan passar vel saman.
Mesh see through detailar á hliðum.
Léttir og ótrúlega flottir skór – Stella McCartney
Ég á bæði buxurnar og bolinn… einn af mínum uppáhaldslitum fyrir ræktina. Bolurinn er extra góður fyrir útihlaup enda með einhvers konar flísefni að innan.
Skórnir sem Ása bloggaði um… ahh, svo flottir! Þeir eru líka ofsalega léttir.
Þessir eru æðislegir… og já, líka ofsalega léttir!
Stella McCartney æfingabolur.. efnið er drop dead gorgeous. Sýndist bara einn vera eftir – í stærð 34.
Stella McCartney æfingabolur.
Hlaupajakkinn sem ég á er þarna í miðjunni..
Allt á 30% afslætti – blahhh…
Ég þarf að fara aftur og næla mér í eitthvað fallegt. Planið næstu mánuði er að vera aðallega í íþróttafötum… og í ræktinni og á bókasafninu. Þá er sko allt í lagi að eyða í falleg æfingaföt. Ég er líka svo hrikalega comfy týpa – eins og er sit ég hér í fjólubláum sweatpants sem ég keypti árið 2008, þær eru orðnar sjúklega ljótar… en samt svo þægilegar. Guilty pleasure þarf að kveðja fataskáp minn – inn með fashion pleasure!
Fyrir áhugasama bendi ég á facebook-síðu Adidas









Skrifa Innlegg