Ef einhver hefur velt fyrir sér hvernig hann/hún eigi að missa 30 kíló á einum degi, þá hef ég svarið. Töfralausnin felst í því að skila mastersritgerð. Allavega líður mér eins og 30 kílóa þungu fargi hafi verið af mér létt. Með réttu ætti dagsetningin utan á kápunni að vera “Febrúar 2013”, en í rúmt ár hefur mér tekist að fresta þessari óvinkonu minni. Hins vegar varð hún vinkona mín í dag, og mér líður alveg yndislega vel. Ég er virkilega stolt af sjálfri mér.
Bestu kveðjur..
Skrifa Innlegg