fbpx

Af hverju átt þú að fara í Marshalls?

BANDARÍKINPERSÓNULEGT

Ég mun seint hætta að lofsyngja Marshalls (+Winners, TJMaxx og Ross). Í október fór ég til Boston og tók nokkrar myndir af skemmtilegum vörum sem fást í Marshalls. Þessu eruð þið að missa af, kæru anti-Marshallistar. Sumir eru með fordóma (ef svo má að orði komast) fyrir búðum sem eru stútfullar af gramsdóti og eins og sjá má á myndunum eru þeir einstaklingar að missa af miklu. Ég skal sýna því einhvern skilning, það getur verið mjög andlegt og taugastrekkjandi að leggja leið sína inn í slíkar verslanir á annasömum dögum.

Ég ætlaði að taka hundrað myndir en gleymdi mér svo allskavakalega í gramsinu. Ég nennti auðvitað ekki að fara annan hring í búðinni. Marshalls og þessar verslanir sem ég taldi upp hér að ofan hafa sko reddað mér í gegnum árin. Ég hef eignast ýmislegt ótrúlega fínt en á stórlækkuðu verði. Í sumar gekk t.d. vinkona mín út úr búðinni með Weber rafmagnsgrill og borgaði 250$ fyrir það. Það er gjörsamlega allt til í þessum búðum. Ég veit að flestar þessara búða fá sendingu þrisvar í viku og því hægt að fara nokkrum sinnum í viku fyrir þá allra geðveikustu. Þeir allra geðveikustu eru til dæmis ég og amma. Amma mín er mesti Marshalls aðdáandi í heimi og þegar ég hef farið til hennar í heimsókn förum við jafnvel tvisvar í viku. Það er fátt sem mér finnst skemmtilegra en Marshalls ferð.

… og það besta við þessa búð er að hér fást skemmtilegustu jólagjafirnar. Það er gaman að gefa meira og veglegra fyrir peninginn.

IMG_0295

Le Creuset. Er þetta ekki nýjasta æðið? Hér er hægt að kaupa þetta á fáranlega lítinn pening. Vöruúrvalið er líka talsvert.

10863732_10205366819272182_1763791277_n

Það er alltaf nóg af dóti frá Joseph Joseph í hillunum. Ég keypti þetta og ætlaði að gefa vinkonu minni… en þá á hún svona. Ætli ég verði þá ekki bara að taka þetta úr umbúðunum og skella þessu í skúffuna.

IMG_0297

KitchenAid hrærivél á 199$. Það er ekkert mál að kaupa hrærivél í Bandaríkjunum ef þú átt viðeigandi straumbreyti.

IMG_0301

KK bátaskór frá Ralph Lauren. Skóúrvalið er yfirleitt mjög mikið og þá má gjarnan finna flott merki eins og Ralph Lauren.

IMG_0303

Le Creuset í bland við flotta potta og pönnur.

IMG_0304

Sistema nestisbox. Ég á tvö slík og finnst þau æðisleg.

IMG_0305

OXO boxin sem ég er með á heilanum.

10850479_10205365937730144_2137634829_n

Eins og sést hef ég keypt nokkur… mig langar helst að eiga box undir hverja matvöru. Þær haldast ótrúlega ferskar í langan tíma og þar með sparar það manni mikinn pening. Skipulagið verður líka frábært!

IMG_0300

Sperry bátaskór.. þeir allra bestu og flottustu. Extra kjút á barn.

IMG_0306

Æðisleg rúmföt frá R. L.

10836208_10205365874208556_2098769925_n

Ég fann þennan hlaupajakka frá Stella McCartney í sumar.

IMG_0163

Hér má sjá eitt stykki Happy Camper með rjúkandi heitan poka úr Marshalls. Þessi poki var næstum því jafn stór og þungur og ég. Svo var þvílíkur vindur og ég réði ekki við pokann sem fór ósjaldan upp í mig. What a day.

10841541_10205365874448562_461958532_n

Yankee Candle kertin. Kertarekkinn í Marshalls er hlaðinn kertum… sem lenda yfirleitt í körfunni minni. Yankee Candle kerti kosta vanalega um 25$ en þau eru rúmlega helmingi ódýrari í Marshalls, eða 12$.

10846920_10205365874648567_331652881_n

Svo fann ég þetta sett þar fyrir tveimur árum.. kostaði nú bara 20$ í stað 70$.

Ég gæti nú tekið mynd af ýmsu fleira hér heimavið en þetta nægir, kem kannski með aðra færslu síðar þegar ég hef meira myndefni. En allavega, leggið leið ykkar endilega í Marshalls. Þið farið ekki tómhent út!

Sincerely, the second biggest Marshalls fan of all time…

karenlind

Bio Effect vörurnar

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Brynja Björk Garðarsdóttir

    11. December 2014

    Ohh ég er líka Marshalls elskandi…..og TK Maxx! :)

  2. Svart á Hvítu

    11. December 2014

    Ég elska gramsbúðir…. hef því miður ekki farið oft til USA en ég hef sko fengið smjörþefinn af svona búðum!:)

  3. Íris Thelma Jónsdóttir

    11. December 2014

    Eitt af því fyrsta sem ég geri þegar ég kem til boston er að fara í Marshalls ;) elska þessa búð!

  4. Áslaug Þorgeirs.

    11. December 2014

    Fokking elska þess búð. Það er bara þannig. Þær eru auðvitað rosalega misjafnar og fólk gæti hafa lent í slæmri búð í sinni fyrstu heimsókn – En það er möst að kíkja inn í hverja Marshalls!

    Mín allra uppáhalds enn sem komið er – Downtown Miami…Þangað fór ég oft í viku og gerði frábær kaup :)

    • Karen Lind

      11. December 2014

      Er það? Ég þarf að fara þangað einn daginn. Flottasta sem ég hef farið í var í Minneapolis. Ég var þar í 5 tíma, haha!!! Fáranlega lengi. En það er mikið rétt, búðirnar eru misjafnar.. þess vegna förum við amma oft tvisvar :) haha… smá sýki.

      • Áslaug Þorgeirs.

        12. December 2014

        Ég þarf klárlega að kynna mér búðina í Boston og Minneapolis…Sýnist það vera málið – TO DO næsta sömmer :)

        5 tímar er góður árangur, haha..Það er bara eitthvað gott að vera þarna !

  5. Ína María

    11. December 2014

    Ég er líka mesti Marshalls fan!! Ég fer í allar Marshalls sem eru á svæðinu (þar á meðal TJMaxx) læt enga þannig búð fara fram hjá mér, leynist alltaf eitthvað í hverri einustu

    • Karen Lind

      12. December 2014

      You spoke my mind. Ég nota sömu aðferð :) Alltaf eitthvað sem leynist í hverri búð!