Gleðilegan mánudag! Vonandi var helgin hjá ykkur æðisleg, allir nutu sólarinnar og fylgdust spennt með landsleiknum.
Ég var í útskrift um helgina og mig langaði að deila með ykkur förðuninni sem ég gerði. Ég tók reyndar ekki góðar förðunarmyndir en tók nokkrar (margar) sjálfsmyndir.
Ég er ekkert búin að breyta myndunum, þannig að þið sjáið vonandi vel hvernig förðunin kom út
Ég ætla taka ykkur “step by step” ..
Mér finnst mjög mikilvægt að undirbúa húðina vel og nota ég alltaf gott rakakrem áður en ég geri eitthvað annað.
Ég er oft með hreinsiklúta við hönd, ekki til þess að hreinsa húðina heldur til þess að hreinsa undir augunum ef ske kynni að augnskuggi myndi detta niður.
Varaprepp er mjög mikilvægt. Ég gleymi þessu skrefi samt ansi oft samt en þetta er ótrúlega mikilvægt.
Þetta eru tvær vörur frá Glam Glow og heita Plumpageous Matte Lip Treatment og gera varirnar aðeins stærri. Síðan er það Poutmund Wet Lip Balm Treatment Mini og er varasalvi með lit í.
Ég byrja alltaf á augabrúnunum og notaði þetta Urban Decay combo. Ég er búin að vera nota Brow Beater og Brow Tamer í svolítinn tíma núna og elska þetta!
Ég notaði bara Coloured Raine augnskugga. Þeir eru ótrúlega litsterkir og blandast ótrúlega vel.
Augnskugginn sem ég notaði yfir allt augnlokið heitir “Down Town“
Síðan notaði ég þennan eyeliner frá Rimmel til þess að gera léttan eyeliner. Oftast nota ég blautan eyeliner en ég vildi ekki hafa eyeliner-inn of áberandi.
Ég notaði ekki tvenn augnhár haha en þau sem ég var með eru ekki lengur í pakkningunni en þau heita Allure og eru frá Koko Lashes.
Síðan notaði ég fallegasta pigment í öllum heiminum í innri augnkrók en það heitir Vegas Baby (nr.20) frá Nyx.
Ég nota alltaf þetta augnháralím frá Eylure
Á húðina þá notaði ég þetta combo, farða frá YSL og hyljara frá Urban Decay. Þessi farði frá YSL er æðislegur, myndast ótrúlega vel og mjög léttur á húðinni.
Síðan notaði ég litaleiðréttandi penna frá YSL til þess að hylja roða.
Ég nota alltaf púður yfir allt andlitið því ég er með frekar olíumikla húð og vill að farðinn endist allt kvöldið, sem hann gerði. Ég keypti mér Airspun púðrið í Walgreens um daginn og kom mér skemmtilega á óvart, mæli með.
Síðan notaði ég Beached Bronzer frá Urban Deacy til þess að hlýja húðina, þetta er UPPÁHALDS sólarpúðrið mitt þessa stundina. Á kinnarnar notaði ég After Glow kinnalitinn frá Urban Decay í litnum SCORE og Rodeo Drive frá Ofra á kinnbeinin.
Ég er síðan alltaf mjög dugleg að spreyja rakaspreyi á andlitið nokkrum sinnum í gegnum förðunina. Það lætur allt blandast mun betur saman og förðunin endist lengur.
Á varirnar notaði ég nýju varalitina mína frá Kylie . Þessir komu samt einungis í takmörkuðu magni en vonandi koma þeir aftur því þeir eru æði.
Notaði líka Velvet Teddy frá Mac
Ég notaði sem sagt fyrst Velvet Teddy síðan Kimmie og svo Kimberly í miðjuna
Svo til þess að toppa look-ið þá spreyjaði ég þessu æðislega ilmvatni á mig frá Lancome
Takk fyrir að lesa xx
– Guðrún Helga Sørtveit
Snapchat: gsortveitmakeup
Skrifa Innlegg