Leðurbuxur eru úti um allt þessa dagana eins og nokkur okkar á Trendnet höfum fjallað um. Að mínu mati eru leður- og pleðurbuxur algjört must have í fataskápinn og geng ég mikið í þeim sem ég á. Ég er líka alltaf til í að kaupa mér nýtt par ef ég rekst á flottar, þetta fer að verða svipað æði hjá mér og með hvítu skyrturnar.Fyrir mitt leyti eru pleðurbuxur ekkert síðri en leðurbuxur ef þær eru úr góðu efni og líta nokkurn veginn út fyrir að vera ekta.
Síðustu vikur hafa okkur borist fyrirspurnir um hvar hægt sé að fá flottar leður- og pleðurbuxur. Ég tók saman buxur úr öllum áttum og það er greinilegt hve heitar þær eru í dag þar sem ég þurfti að stoppa mig af til að færslan yrði ekki leiðinlega löng. Það er mikið í boði – ég vona að þetta hjálpi einhverri ykkar sem er í leit að flottum leður- eða pleðurbuxum.
H&M – ég keypti mér þessar í vikunni á 20 evrur

Vero Moda

Mango

Y.A.S

H&M

Warehouse

ASOS

Silence + Noise

ZARA

ZARA

KALDA @Einvera

Rag & Bone

ZARA

Isabel Marant

AllSaints

& Other Stories

Selected

Vince
Selected

H&M
xx
Andrea Röfn
Mér barst tölvupóstur um daginn aðspurð hvaða hárvörur ég nota til að halda hárinu heilbrigðu og glansandi.
Ég hef aldrei litað á mér hárið eða gert eitthvað svakalegt við það. Það er því mjög heilbrigt og vex svakalega hratt. Á móti kemur að hárið mitt er mjög lítið móttækilegt fyrir öllum krullujárnum eða rúllum – sem getur verið alveg hrikalega pirrandi.
Einu hárvörurnar sem ég nota eru sjampó, hárnæring og hárbursti.





1. Brilliant Brunette
2. Moroccanoil frá Moroccanoil
3. Moroccan argan oil frá Organix
4. Garnier Fructis
5. Tangle Teezer hárbursti
–
Ég hef notað Garnier Fructis vörurnar mest og þær bregðast mér aldrei. Moroccanoil frá Moroccanoil er svo algjört lúxussjampó finnst mér, lyktin er líka guðdómleg. Ég mæli klárlega með öllum þessum vörum.
Að lokum þá nota ég nánast aldrei hárblásara heldur læt hárið þorna sjálft.
Mig er mikið farið að langa til að breyta hárinu og klippa það styttra. Ég sýni ykkur myndir af hugmyndum fljótlega.
xx
Andrea Röfn
Pharrell Williams snillingur frumsýndi í gær skemmtilegt tónlistarmyndband við lagið sitt Happy.
Myndbandið er mjög óhefðbundið en það er 24 klukkustunda lagt! Má þar sjá alls kyns fólk við hinar ýmsu aðstæður dansa og syngja við lagið, öll af mikilli innlifun.












Ég mæli með því að þið kíkið á þetta og flettið á milli, ekki nema þið hafið lítið að gera næstu 24 klukkustundirnar og langi að sjá þetta allt saman. Þetta er klárlega skemmtilegasta tónlistarmyndband sem ég hef séð.
Hlustið, njótið, brosið og komið ykkur í gírinn
HÉR: 24hoursofhappy.com
:-)
Andrea Röfn
Þegar hún Svana var í Eindhoven skellti ég mér í bíltúr þangað til að hitta hana. Planið var að kíkja á sýningar enda Dutch Design Week í fullum gangi.
Við byrjuðum reyndar á því að kíkja í fatabúð sem vinkona hennar starfar í. Hún heitir You are Here og býður upp á fullt af flottum merkjum, m.a. Alexander Wang og Kenzo. Ég endaði með flík í poka, Kenzo peysu með útsaumuðu auga sem ég er mikið ánægð með enda búið að langa lengi í Kenzo peysu.

Búðarmaðurinn Ismail sem vildi endilega skella mér í pils við peysuna en við Svana hristum báðar hausinn og sögðum á sama tíma að ég væri ekki alveg sú týpa. Hann er sjálfur í peysu frá Kenzo.









Við kíktum svo að sjálfsögðu á hönnunarsýningar sem voru heldur betur glæsilegar. Það er greinilegt að hér í Hollandi blómstrar hönnunin.
xx
Andrea Röfn
Halló heimur!
Ég er komin heim úr vinnuferð
Þetta var myndataka fyrir NIKITA á virkilega falegum slóðum á Ítalíu. Kuldinn var frekar mikill og því þónokkrir bollar af heitu kakó drukknir á meðan. Tökudagarnir voru þrír en svo fóru dagar í ferðalög. Það er svo fyndið að þó ég búi hérna í Hollandi þá var einhvern veginn miklu meira vesen en ég bjóst við að koma mér aðeins neðar á meginlandið og því þurfti lestarferðir, flug og langar bílferðir til að komast á milli. Því var dásamlegt að koma heim eftir langt ferðalag á laugardaginn.
Ég tók nokkrar myndir á meðan tökunum stóð af ævintýralega fallega landslaginu sem var þarna allt í kring. Ég varð orðlaus við að sjá margt og vona að ég hafi náð að festa þetta ágætlega á filmu fyrir ykkur að sjá.

Flugvallarbiðin sem ég er orðin svo vön

Lago di Braies. Þessi staður er með því fallegra sem ég hef augum litið. Lago di Braies er á lista UNESCO yfir friðuð svæði í heiminum.








Þessar geitur léku sér fyrir utan húsið okkar


Morgun útsýnið
Klár í daginn

Ég fékk ekki nóg af því að taka myndir af svæðinu eins og sést

Húskötturinn

Að sjálfsögðu klikkuðum við ekki á sjálfsmyndunum. Það er alltaf jafn gott að hitta þessar stelpur, þær sjá til þess að maður fari hlæjandi og glaður í gegnum daginn!



<3
xx
Andrea Röfn
Í síðustu færslu sagði ég ykkur frá frábæra haustinu hérna í Nijmegen og 20 stiga hita. Veðrið hefur hins vegar tekið U-beygju síðan þá og í dag var ótrúlegt rok og stormur eins og víða annars staðar.
Þetta er mood-ið akkúrat núna, stórar peysur, teppi, kertaljós og notalegheit.







Ég er í sérstaklegu kósí-skapi núna þar sem ég þarf að vakna eldsnemma í fyrramálið og leggja af stað í vinnuferð.
Heyrumst næst frá Bolzano, Ítalíu, ef ég verð nettengd!
xx
Andrea Röfn
Haustið þykir mér rosalega falleg árstíð.
Hér í Hollandi er haustið enn ríkjandi og mikið sem það er notalegt. Hitinn er reyndar 20 gráður þannig sumir myndu jafnvel kalla þetta sumar! Ég tók þessar myndir í almenningsgarði hér í bænum, þar sem Bella hundurinn okkar elskar að hlaupa út í hið endalausa.



Hér hjóla allir um allt – stelpur á leið heim úr skólanum




Ég er svo hrifin af öllum þessum fallegu litum – og lofa því að þessum myndum hefur ekkert verið breytt!
xx
Andrea Röfn
Eins og í fyrri leikjum þá hefur þátttakan í #TRENDJOE leiknum okkar verið frábær
Ég er búin að velja mínar uppáhalds myndir í leiknum sem fá skemmtilega vinninga

@arnarthorri – skemmtilegt að sjá staðinn sjálfan sem er sérstaklega glæsilegur og öðruvísi en maður er vanur. Arnar á inni 10 skipta djúskort á Joe & the Juice!

@ibryndis – girnileg avokado samloka, djús og Rolling Stone.. góð þrenna. Bryndís á inni 10 skipta samlokukort á Joe & the Juice.
Til hamingju Arnar og Bryndís! Þið getið vitjað vinninganna á Joe & the Juice í Smáralind með því að sýna persónuskilríki og vinningsmyndina ykkar.
Endilega haldið áfram að taka þátt í leiknum en hann heldur áfram næstu daga. Það er því enn tilefni til að merkja instagram myndirnar með #TRENDJOE
xx
Andrea Röfn
Ætla ekki allir að kíkja á Kringlukast? Og jafnvel fá sér Joe & the Juice í leiðinni..
Þessi auglýsing er í blöðunum þessa dagana

Mynd: Svenni Speight
Förðun: Fríða María
Hár: Steinunn Ósk
Stílistar: Hrafnhildur Hólmgeirs og Anika Laufey
xx
Andrea Röfn
Ef þið eruð ekki búin að prófa Joe & the Juice eða vissuð ekki af staðnum þá er hann nýopnaður bæði í Kringlunni og Smáralind
Við Indíana erum búnar að fara tvisvar í smá Joe-trít

Ég mæli með: Avocado samloku og Iron Man djús
Merkið endilega instagram mynd með #TRENDJOE til að eiga möguleika á gómsætum vinningum!
xx
Andrea Röfn